Kjúklinga-og spínatbaka.

Þegar ég á afgang af kjúkling þá finnst mér tilvalið að búa til kjúklinga- og spinatböku. Bakan er bæði mjög einföld og svakalega góð. Þið getið auðvitað notað hvaða fyllingu sem þið viljið og það er ágætt að nota bara það sem þið eigið til í ísskápnum hverju sinni. Þið getið notað spelt eða venjulegt hveiti í botninn á bökunni. Það fer eftir ykkar smekk. Mæli með að þið prófið að útbúa gómsæta böku. 
Kjúklinga-og spínatbaka. 
Botn:
  • 2 bollar fínmalað spelt, bollinn sem ég notaði rúmar 237 ml.
  • 100 g smjör, skorið í teninga
  • 100 ml kalt vatn 
  • smá salt 

Aðferð:

Skerið smjörið í litla teninga, blandið smjörinu, speltinu og saltinu saman með höndunum í skál. Bætið síðan vatninu saman við smám saman. Smjörið þarf að blandast vel saman við speltið svo það tekur nokkrar mínútur. Sláið deiginu upp í myndarlega kúlu , setjið plastfilmu utan um og geymið í kæli í lágmark 30 mínútur.
Takið deigið út úr ísskápnum og fletjið út. Smyrjið bökunarform og setjið deigið í formið. Potið nokkrum sinnum í deigið með gaffli og bakið við 180°C í 8 – 10 mínútur. 
 Fylling:

  • 1 msk ólífuolía
  • 400 – 500 g kjúklingakjöt
  • 1 rauð paprika, smátt skorin
  • 1/2 rauðlaukur, smátt skorinn
  • 2 bollar spínat, smátt skorið
  • 2 tómatar
  • 1 hvítlauksgeiri, pressaður
  • 1 lítil dós kotasæla
  • 4 egg
  • 80 ml mjólk
  • salt og nýmalaður pipar 
  • 1 tsk ítölsk kryddblanda
  • rifinn mozzarella ostur, magn eftir smekk
 Aðferð:
Hitið olíu í pönnu, skerið grænmetið mjög smátt og steikið við vægan hita. Þegar grænmetið er orðið mjúkt þá bætið þið spínatinu saman við og foreldaða kjúklingnum og leyfið þessu að malla á pönnunni í nokkrar mínútur. Takið pönnuna af hitanum og blandið einni dós af kotasælu saman við. Kryddið til með salti og pipar. Hellið blöndunni í bökuskelina. Pískið egg og mjólk léttilega saman og hellið yfir blönduna. Dreifið osti yfir í lokin og bakið við 180°C í 30 – 35 mínútur, eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.  
Berið bökuna fram með fersku salati og góðri dressingu 
 Lyktin af bökuni er dásamleg. Ég fékk mjög gott bökunarform  í IKEA á mjög fínu verði. Það er sérlega gott að baka bökur í þessu formi. 

 Einföld, fljótleg og ljúffeng máltíð.
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

3 comments

Leave a Reply to Eva Laufey Kjaran - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *