GRÍSK PÍTA MEÐ TZATZIKI SÓSU – EINFALT MEÐ EVU

Grísk píta með ljúffengu nautakjöti og tzatziki sósu

Pítur eru ómótstæðilega góðar og þessi píta með grískum blæ er sérlega góð. Nautakjötið verður ferskara með mintunni og tzatziki sósunni. Það er líka mikið sport fyrir hvern og einn að setja saman sína eigin pítu eftir smekk hvers og eins.

• 600 g nautakjöt
• 1 msk ólífuolía
• 2 stk hvítlauksrif
• 1 tsk paprikukrydd
• 1 tsk cuminkrydd
• Salt og pipar
• 1 msk smátt söxuð minta
• Börkur af hálfri sítrónu
• Pítubrauð
• Ferskt salat
• Agúrka
• Svartar ólífur
• Rauðlaukur
• Hreinn fetaostur
• 1 skammtur tzatziki sósa, uppskrift hér að neðan

Aðferð:

1. Skerið nautakjötið í jafn þykkar sneiðar.
2. Kryddið kjötið með paprikukryddi, cuminkryddi, salti, pipar, smátt saxaðri mintu og rífið niður börk af hálfri sítrónu yfir.
3. Sáldrið ólífuolíu yfir kjötið og steikið á mjög heitri pönnu í 3 – 4 mínútur á hvorri hlið. Hvílið kjötið í lágmark fjórar mínútur áður en þið skerið það niður.
4. Setjið kjötið á fallegan bakka eða disk og berið fram með pítubrauði, tzatziki sósu, grænmeti og hreinum fetaosti.

Tzatziki sósa

• ½ agúrka
• 300 g grískt jógúrt
• 2 hvítlauksrif
• 1 msk smátt söxuð minta
• 1 tsk hunang
• 2 msk sítrónusafi
• Salt og pipar

Aðferð:

1. Setjið gríska jógúrt í skál, rífið niður agúrku og hvítlauk og blandið vel saman.
2. Saxið niður mintu og bætið henni einnig saman við ásamt hinum hráefnunum.
3. Blandið öllum hráefnum afar vel saman og smakkið ykkur til með salti og pipar.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *