Íslenska kjötsúpan í öllu sínu veldi

Á haustdögum er fátt betra en matarmikil og góð súpa, að mínu mati er Íslenska kjötsúpan sú allra besta. Það er fátt notalegra en að útbúa gómsæta súpu og leyfa henni að malla í rólegheitum, ilmurinn sem fer um heimilið er dásamlegur. Það góða við þessa súpu er að hún er enn betri daginn eftir. Ég fæ ekki nóg af þessari súpu og það skemmir ekki fyrir að hún er bráðholl.
Prófið gjarnan þessa uppskrift og ég er handviss um að þið eigið eftir að njóta vel.

 

Uppskriftin er úr bókinni minni Matargleði Evu.
Íslenska kjötsúpan
  • 700  – 800 g lambasúpukjöt
  • 3 l vatn
  • 4 grænmetisteningar
  • 200 g gulrætur, flysjaðar og skornar í litla bita
  • 2 meðalstórar rófur, flysjaðar og skornar í litla bita
  • ½ spergilhálshöfuð, skorið í litla bita
  • ½ hvítkálshöfuð, skorið í litla bita
  • 5 msk súpujurtir
  • Örlítið af hafra—eða hrísgrjónum, um msk
  • Salt og pipar, magn eftir smekk
  • Smátt söxuð fersk steinselja
Aðferð:
  1. Setjið kjötið í pott og hellið köldu vatni yfir. Hitið rólega að suðu og
    fleytið froðu ofan af. Endurtakið nokkrum sinnum til að losna við
    sem mest af froðunni.
  2. Skerið grænmetið í litla bita og bætið út í, kryddið til með salti og pipar. Leyfið súpunni að malla undir loki í lágmark 30 mínútur.
  3. Bætið grænmetisteningum, súpujurtum og hafra-eða hrísgrjónum saman við og leyfið súpunni að malla í 30 mínútur til viðbótar. Það er mjög mikilvægt að smakka súpuna á þessum tímapunkti.
  4. Sjóðið kartöflur í sér potti og berið fram með súpunni.
  5. Saxið ferska steinselju og sáldrið yfir súpuna áður en þið berið hana fram.

Á mínu heimili er alltaf boðið upp á smurt rúgbrauð með súpunni og það þykir mér einstaklega gott.

 

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

1 comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *