Glútenlausar og gómsætar bláberjapönnukökur

 
Glútenlausar og gómsætar bláberjapönnukökur
  • 5 dl Finax fínt  mjöl
  • 4 msk brætt smjör
  • 1 tsk. Vínsteinslyftiduft
  • Salt á hnífsoddi
  • 2 tsk. Góð vanilla (vanilla extract eða vanillusykur)
  • 2 dl mjólk
  • 1 ½ dl AB mjólk (eða önnur hrein súrmjólk)
  • 1 – 2 msk sykur
  • 2 – 3 dl bláber (fersk eða frosin)

 

 Aðferð:
  1. Sigtið saman hveiti, lyftiduft og salt.
  2. Bræðið smjör, leggið til hliðar og kælið.
  3. Pískið eitt egg og mjólk saman.
  4. Næsta skref er að blanda öllum hráefnum vel saman í skál með
    sleif. Bætið bláberjum saman við deigið í lokin með sleif.
  5. Leyfið deiginu að standa í 30 – 60 mínútur áður en þið
    steikið pönnukökurnar.
  6.  Hitið smjör á pönnukökupönnu og steikið pönnukökurnar í ca.
    mínútu eða tvær á hvorri hlið. Þær eru tilbúnar þegar þær eru
    gullinbrúnar.
Berið pönnukökurnar fram með ljúffengu sírópi og ferskum berjum.
Njótið helgarinnar.
xxx
Eva Laufey K. Hermannsdóttir

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *