Besta döðlukakan með karamellusósu

Þessi kaka fer með mig til Bretlands í huganum, ég bjó í Oxford í nokkra mánuði eftir að ég kláraði framhaldsskóla. Þar var ég í enskunámi og vann á litlu veitingahúsi. Það er ekki hægt að segja að bresk matarmenning hafi heillað mig upp úr skónum en einn eftirréttur gerði það svo sannarlega, en hann heitir Sticky Toffee Pudding. Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég gæddi mér á honum og ég geri hann mjög oft hér heima fyrir, en þá ber ég hann fram sem eina stóra köku. Döðlur eru dísætar og dásamlegar og eru einstaklega ljúffengar í þessari köku. Þetta er fullkomin kaka á sjálfan konudaginn.
Döðlukaka með dásamlegri karamellusósu
  • 5 msk sykur
  • 120 g smjör, við stofuhita
  • 2 Brúnegg
  • 100 g Kornax hveiti
  • 210 g döðlur
  • 1 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk kanill
  • 1/2 salt
  • 1/2 vanillu extract, eða dropar
  • 1 1/2 tsk lyftiduft
Aðferð; í máli og myndum 
 
  1. Byrjið á því að stilla ofninn á 180°C.
  2. Leggið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir.
  3. Hitið döðlurnar og vatnið í potti, þegar vatnið er byrjað að sjóða takið pottinn af hitanum og látið standa í 3 – 4 mínútur.

4. Blandið matarsóda saman við döðlumaukið og hrærið vel saman.
5. Leggið blönduna til hliðar.
6. Hrærið saman sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. Bætið eggjum saman við, einu í einiu. Sigtið þurrefnin saman og bætið út í deigið ásamt vanillu.
7. Blandið döðlumaukinu smám saman út í deigið og blandið varlega saman með sleif.

8. Smyrjið hringlaga bökunarform (ég notaði 9″ eða 24 cm). Mér finnst best að klippa út bökunarpappír og setja í botninn, það auðveldar að ná kökunni úr forminu.
9. Hellið deiginu í formið og bakið í 30 – 40 mínútur eða þar til miðjan er alveg bökuð.
Kakan tilbúin og lyktin dásamleg, leyfið kökunni að kólna aðeins áður en þið berið hana fram.
Heit karamellusósa. 
 
  • 120 g smjör
  • 1 1/2 dl rjómi
  • 120 g púðursykur

 

1. Hitið öll hráefnin í potti þar til karamellan fer að sjóða, hrærið reglulega í pottinum eða þar til þið hafið náð ágætri þykkt á karamellunni. Ég vil ekki hafa hana of þykka og ég hræri þess vegna ekki of lengi. Þessa sósu er hægt að bera fram með flestum eftirréttum, en hún er algjört lostæti.
Kakan er vissulega góð ein og sér en karamellusósan er eiginlega nauðsynleg. Svo er auðvitað afskaplega gott að hafa ís eða rjóma með.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

 

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *