Bleikur sunnudagsbakstur

 Október er mánuður Bleiku slaufunnar.
Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í báráttunni gegn krabbameinum hjá konum.
Árlegur meðafjöldi krabbameina hjá íslenskum konum er um 660.
Það er skylda okkar að styðja baráttuna gegn krabbameini hjá konum og vera með slaufuna sýnilega.
Mamma mín greindist með krabbamein þegar hún var einungis 28 ára gömul þá þriggja barna móðir, eldri systir mín var 10 ára, ég tveggja ára gömul og litli bróðir minn árinu yngri. Ég get ekki ímyndað mér áfallið sem mamma gekk í gegnum og fólkið okkar, við vorum of lítið til þess að skilja hvað gekk á en ég man samt eftir skurðinum á hálsinum á mömmu – hálf skýjuð minning en ég man hvað plásturinn var stór. Ég þakka æðri máttarvöldum fyrir að mamma mín sigraði meinið, sem var blessunarlega hægt að fjarlægja.
Ég þakka fyrir tæknina, fólkið í heilbrigðisgeiranum og þær rannsóknir sem gerðar eru til þess að finna lækningu við krabbameini. Það er margt sem við getum gert til þess að styðja við baráttuna gegn krabbameini, Bleika slaufan er ein leið til þess.
 Sunnudagsbaksturinn var því helgaður Bleiku slaufunni.
Vanillubollakökur með hvítu súkkulaði 
250 g Sykur
140 g Smjör
2 Egg
250 gHveiti
1 1/2 msk. Vanilla Extract
1 tsk. Lyftiduft
70 g hvítt súkkulaði, smátt saxað
3 msk. Mjólk

Þeytið saman smjör og sykur í þrjár mínútur, bætið einu og einu eggi saman við. Þeytið vel á milli.

Sigtið saman hveiti og lyftiduft amk. þrisvar sinnum. Bætið hveitiblöndunni, vanilla og mjólkinni saman við og blandið mjög vel saman í nokkrar mínútur þar til blandan verður orðin silkimjúk. Að lokum bætið þið hvíta súkkulaði saman við með sleif.
Setjið í bollaköku form og inn í ofn við 180°C í 20 – 25 mín.
Kælið kökurnar vel áður en þið setjið á þær krem.

 

Uppáhalds kremið mitt er smjörkrem með hvítu súkkulaði. Það hentar afar vel með ansi einföldum vanillukökum. Þið getið auðvitað notað hvaða krem sem er, súkkulaðikrem er líka ansi gott á kökurnar.
Hvítt súkkulaðikrem
230 g smjör, við stofuhita
4 dl flórsykur
200 g hvítt súkkulaði, brætt.
2 tsk vanilla extract
Þeytið flórsykur og smjör vel saman í nokkrar mínútur. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og bætið við smjörkremið. Að lokum bætið þið vanillu saman við og hrærið vel í nokkrar mínútur, þar til kremið verður létt og fínt.
Ég setti nokkra dropa af bleikum matarlit saman við kremið.
Ég bræddi hvítt súkkulaði og bætti smávegis af bleikum matarlit saman við, sprautaði síðan súkkulaðinu á bökunarpappír og bjó til bleika slaufu. Lét súkkulaðiskrautið standa inn í ísskáp í klukkustund áður en ég lét það á kökurnar.

 Bleikar kökur sem voru svo sannarlega góðar með ískaldri mjólk.

 

 

 

Ég  vona að þið eigið ljúfan sunnudag kæru vinir
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

7 comments

  • takk fyrir frábært blogg. ég get ekki talið hversu margar uppskriftir ég hef prófað að baka og elda sem ég hef séð á síðunni þinni 🙂 allt svo lystugt og girnilegt.
    en ég er með eina spurningu. þegar þú talar um vanilla extract, hvar kaupiru það? og er það í fljótandi formi eða? ég á bara vanilludropa og vanillusykur og hef notast við það en langar að vita hver munurinn er og hvar sé hægt að kaupa svona. 🙂

    • Mikil ósköp sem ég er ánægð að heyra það kæri lesandi. En ég kaupi yfirleitt vanillu extract í Hagkaup. Það er alltaf til þar. Annars nota ég vanillusykur eða vanillustangir.

      Vanilla extract er búinn til með því að láta vanillustangir liggja í alkahóli og vatni í langan tíma. En vanilludropar eru einfaldlega bragðefni sem búið er til í verksmiðjum.

      Ég finn afskaplega mikinn mun á kökunum mínum eftir að ég fór að nota extract. Það er mikið meira bragð, það er svolítið dýrara en gæðin eru þess virði. Maður þarf ekki eins mikið af dropum í hverja köku því vanillu bragðið er svo sterkt. Alvöru vanilla!

      Mæli því hiklaust með extractinu. =)

  • Frábært færsla sem vekur mann til umhugsunar. Tek heilshugar undir hvert orð, falleg áminning í bland við girnilegar kökur!

Leave a Reply to Rosana Ekelund - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *