Veturinn og sumardekk.

Kl .09.00 í morgun þá var ég búin að hella mér upp á gott kaffi og kveikja á nokkrum kertum.
Þegar að ég vaknaði þá leit ég út um gluggann og sá að veturinn er formlega kominn. Allt í snjó og leiðindaveður, eins og ég hef sagt áður þá er mér illa við snjóinn og vil helst ekkert að hann komi nema þá um sexleytið á aðfangadag. 
 Ég sumsé leit út á grasið sem er nú allt hvítt og leit svo á bílinn sem er enn á sumardekkjum. 
Þvílík tilviljun að vera á sumardekkjum og snjór úti, skemmtilegt twist sem gleður. 
Ég vona að þið eigið góðan dag og á eftir þá ætla ég að draga út heppinn vinningshafa í gjafaleiknum, fylgist endilega með. 
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

3 comments

  • Rosa kósý hjá þér í morgun. Ég elska snjóinn, en legg bílnum í dag og geng í vinnuna 🙂

    Voða fínt að hafa kerti í marimekko skálunum, kemur vel út 🙂

    Njóttu dagsins og hlakka til að sjá hver verður dreginn út í gjafaleiiknum í dag 🙂

  • Nei halló 🙂 mikið hefur bæst í skálasafnið! Startaði ég trendi á vesturgötunni!?

    Knús á þig, er einmitt sjálf á sumardekkjum, kvíði smá fyrir næstu ferð í sveitina 🙂

  • Takk fyrir þessa frábæru síðu. Finnst svo gaman að skoða hana, sjá allar fallegu myndirnar og prófa uppskriftirnar 🙂

    Mig langar svo að forvitnast hvar þú fékkst þennan fallega glerbakka. Hef verið að leita af fallegum glerbakka en aldrei fundið neinn sem mér líkar.

    kv. Björg

Leave a Reply to Anonymous - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *