Í lokaþætti Matargleðinnar var sérstakt sítrónuþema (mögulega tileinkað Beyoncé). Ég bakaði meðal annars þessa æðislegu vanillu- og sítrónuköku sem er í miklu uppáhaldi. Mjög sumarleg og sæt – mæli með að þið prófið hana.
Vanillu-og
sítrónukaka með ferskum berjum
- Bakstur
- Áætlaður tími frá byrjun til enda: 2 tímar
- Fyrir 8-10 einstaklinga
- 200 g smjör
- 200 g sykur
- 4 egg
- 300 g hveiti
- 2 tsk vanillusykur
- 2 tsk lyftiduft
- ½ tsk salt
- 5 msk ferskur sítrónusafi
- börkur af hálfri sítrónu
Aðferð:
- Stillið ofninn í
180°C (blástur) - Þeytið saman
sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. - Bætjum eggjum
saman við, einu í einu. - Blandið
þurrefnum saman í skál og bætið síðan við eggjablönduna, ásamt sítrónusafa og
sítrónuberki. - Hrærið deigið
þar til það verður silkimjúkt. - Skiptið deiginu
niður í tvö smurð form og bakið við 180°C í 22-25 mínútur. - Kælið botnanna
mjög vel áður en þið setjið á þá krem!
Ljúffengt
sítrónusmjörkrem
sítrónusmjörkrem
- 250 g mjúkt
smjör - 500 g flórsykur
- 3 msk
sítrónusafi - 1 tsk
sítrónubörkur, eða minna - 1 msk rjómi
- 100 g hvítt
súkkulaði
Aðferð:
- Þeytið saman
smjör og flórsykur í 2 – 3 mínútur. - Bætið
sítrónusafanum, sítrónuberki, rjóma og bræddu hvítu súkkulaði saman við og
þeytið áfram í 4 – 5 mínútur. Því lengur sem þið þeytið kremið því léttara og
betra verður það. - Smyrjið kreminu
á milli botnanna og skreytið með allskyns ferskum berjum. Sigtið gjarnan smá
flórsykri yfir kökuna í lokin.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups