Vanillu- og sítrónukaka úr Matargleði Evu

Í lokaþætti Matargleðinnar var sérstakt sítrónuþema (mögulega tileinkað Beyoncé). Ég bakaði meðal annars þessa æðislegu vanillu- og sítrónuköku sem er í miklu uppáhaldi. Mjög sumarleg og sæt – mæli með að þið prófið hana.

 

Vanillu-og
sítrónukaka með ferskum berjum

  • Bakstur
  • Áætlaður tími frá byrjun til enda: 2 tímar 
  • Fyrir 8-10 einstaklinga

 

  • 200 g smjör
  • 200 g sykur
  • 4 egg
  • 300 g hveiti
  • 2 tsk vanillusykur
  • 2 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 5 msk ferskur sítrónusafi
  • börkur af hálfri sítrónu
Aðferð:
  1. Stillið ofninn í
    180°C (blástur)
  2. Þeytið saman
    sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós.
  3. Bætjum eggjum
    saman við, einu í einu.
  4. Blandið
    þurrefnum saman í skál og bætið síðan við eggjablönduna, ásamt sítrónusafa og
    sítrónuberki.
  5. Hrærið deigið
    þar til það verður silkimjúkt.
  6. Skiptið deiginu
    niður í tvö smurð form og bakið við 180°C í 22-25 mínútur.
  7. Kælið botnanna
    mjög vel áður en þið setjið á þá krem!
Ljúffengt
sítrónusmjörkrem
  • 250 g mjúkt
    smjör
  • 500 g flórsykur
  • 3 msk
    sítrónusafi
  • 1 tsk
    sítrónubörkur, eða minna
  • 1 msk rjómi
  • 100 g hvítt
    súkkulaði
Aðferð:
  1. Þeytið saman
    smjör og flórsykur í 2 – 3 mínútur.
  2. Bætið
    sítrónusafanum, sítrónuberki, rjóma og bræddu hvítu súkkulaði saman við og
    þeytið áfram í 4 – 5 mínútur. Því lengur sem þið þeytið kremið því léttara og
    betra verður það.
  3. Smyrjið kreminu
    á milli botnanna og skreytið með allskyns ferskum berjum. Sigtið gjarnan smá
    flórsykri yfir kökuna í lokin.

 

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *