Himnesk súkkulaðimús
Fyrir fjóra til fimm
- 30 g smjör
- 220 g súkkulaði t.d. suðusúkkulaði
- 260 ml rjómi
- 3 stk egg
- 2 msk sykur
- 1 tsk vanillu extrakt (eða vanillusykur)
Aðferð:
- Bræðið smjör og súkkulaði við vægan hita í potti.
- Hellið súkkulaðiblöndunni í skál og blandið þremur eggjarauðum saman við. Kælið blönduna
- Þeytið rjóma og bætið að því loknu súkkulaðiblöndunni saman við í þremur hlutum. Leggið blönduna.
- Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum smátt og smátt saman við.
- Hrærið eggjahvítublönduna mjög varlega samanvið súkkulaðiblönduna með sleikju, hrærið vanillu út í að lokum.
- Skiptið súkkulaðimúsinni niður í falleg glös eða skálar og geymið í kælií lágmark 3 klukkustundir áður en þið berið hana fram.
Góða helgi kæru lesendur.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir