Tryllingslega gott grænmetislasagna

Ég deildi þessari uppskrift með áhorfendum Stöðvar 2 í þættinum mínum Matargleði á síðasta ári, einhverra hluta vegna rataði uppskriftin ekki hingað inn og nú bætum við úr því. Það er svo sannarlega alltaf staður og stund fyrir gott lasagna og ég mæli með að þið prófið þessa uppskrift. Gott grænmeti, pasta og góður ostur. Þurfum við nokkuð eitthvað meira? Ég þori að lofa ykkur að þið eigið eftir að elda uppskriftina aftur og aftur – hún er sáraeinföld og þið getið auðvitað notað það grænmetið sem þið eigið til í ísskápnum hverju sinni.

 

Grænmetislasagna með pestókartöflum

Grænmetislasagna

 

 
Ólífuolía
1 laukur
4 hvítlauksrif
2 gulrætur
2 sellerístangir
1 rauð paprika
1 græn paprika
½ kúrbítur
150 g spergilkál
1 dós niðursoðnir tómatar með basilíku
2 msk tómatmauk eða tómatpúrra
600 ml grænmetissoð (soðið vatn + grænmetisteningur)
salt og pipar
Handfylli fersk basilíkulauf
Handfylli fersk steinselja
1 dós kotasæla
1 dós sýrður rjómi
Parmesan ostur, magn eftir smekk
Salt og nýmalaður pipar
Lasagneplötur, ferskar eða soðnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkanunm.
Rifinn Mozzarella ostur, magn eftir smekk
Aðferð:

 

  1. Hitið olíu á pönnu. Skerið grænmetið smátt og steikið við vægan hita í nokkrar mínútur eða þar til grænmetið er farið að mýkjast. Bætið pressuðum hvítlauk út pönnuna í lokin og steikið í smá stund. Gott er að setja smá klípu af smjöri.
  2. Bætið niðursoðnum tómötum, tómatmauki, ferskri basilíku, grænmetissoðinu á pönnuna og látið sjóða í 30 mínútur við vægan hita. Kryddið til með salti og pipar.
  3. Á meðan grænmetið mallar á pönnunni búið þið til hvítu sósuna en þið blandið saman kotasælu, sýrðum rjóma, 50 g af rifnum parmesan, salti og pipar. Blandið vel saman.
  4. Setjið grænmetisblöndu í botninn á eldföstu móti,  því næst lasagnaplötur, hvítu sósuna, aftur grænmetisblönduna og endurtakið leikinn einu sinni til tvisvar.
  5. Dreifið vel af rifnum mozzarella osti yfir og nýrifnum parmesan.
  6. Bakið í ofni við 180°C í 40 – 45 mínútur.
Kartöflur með kasjú- og klettasalatpestói
Kartöflur
150 g kasjúhnetur
Handfylli fersk basilíkulauf
Handfylli klettasalat
50 g parmesan ostur
Nóg af olífuolíu (smekksatriði hvað þið viljið hafa pestóið þykkt)
Salt og pipar
Skvetta af sítrónusafa
Aðferð:

 

  1. Sjóðið kartöflur með hýðinu, saltið vel.
  2. Maukið saman kasjúhnetur, basilíku, klettasalat, parmesan ost, ólífuolía, salt, pipar og sítrónusafa með töfrasprota eða matvinnsluvél.
  3. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar þá hellið þið vatninu af þeim og blandið þeim saman við pestóið.

 

Njótið vel kæru vinir.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefnið sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *