Helgin er búin að vera svo ansi fín. Ég er búin að fara á tvenna tónleika, mjög ólíkir tónleikar en frábærir báðir tveir. Annars vegar með Jet Black Joe og hins vegar með Eivör. Frábært tónlistarfólk.
Svo er ég búin að eyða helginni með góðu fólki, borða góðan mat og hafa það huggulegt.
Dagurinn í dag byrjaði á pönnukökum og ávöxtum, smá sunnudagshuggulegheit.
Veðrið er ansi gott og ég ætla að eyða deginum með litla frænda mínum.
Veðrið er ansi gott og ég ætla að eyða deginum með litla frænda mínum.
Ég vona að þið eigið góðan dag
xxx
Eva Laufey Kjaran