Súkkulaði Panna Cotta úr Matargleði Evu

Súkkulaðibúðingur með heitri berjasósu
500 ml rjómi
150 g suðusúkkulaði
2 msk sykur
fræin úr 1 vanillustöng
2 plötur matarlím
Aðferð:
Leggið matarlímsblöð í kalt vatn í 4 – 6 mínútur.
Á meðan hitið þið rjóma að suðu og bætið súkkulaði saman og bræðið í
rólegheitum.
Hrærið í á meðan og þegar súkkulaðið er bráðnað bætið þið sykri og
vanillu saman við,  í lokin kreistið þið vökvann frá matarlímsblöðum og
hrærið út í vanillublönduna.
Hellið í skálar og geymið í kæli að minnsta kosti í tvær til þrjár
klukkustundir, best  yfir nótt. 
Heit berjasósa með vanillu
3 dl bláber
3 dl hindber
2 dl sykur
safinn og börkur af hálfri appelsínu
½ tsk kanill
fræin úr 1 vanillustöng
Aðferð:
Setjið öll hráefnin í pott og náið upp suðu, leyfið
sósunni að malla í 3 – 5 mínútur. Berið fram með súkkulaðibúðingnum og njótið
vel.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *