Spaghetti Bolognese með einföldu hvítlauksbrauði

Í síðasta þætti af Matargleði Evu lagði ég áherslu á klassíska rétti og Spaghetti Bolognese eða hakk og spaghettí eins og við köllum það hér heim er án efa einn af þeim. Ég fæ aldrei leið á þessum rétt og elda hann aftur og aftur. Mjög einfaldur og á mjög vel við á haustin.
Spaghetti Bolognese
1 msk. ólífuolía
100 g beikon
1 laukur
2 stilkar sellerí
2 hvítlauksrif
600 g nautahakk
salt og nýmalaður pipar
1 nautakjötsteningur + 2 dl soðið vatn
1 krukka niðursoðnir tómatar
3 lárviðarlauf
1 msk tómatpúrra
fersk basilíka
Handfylli fersk steinselja
Aðferð:
1. Hitið smá ólífuolíu á pönnu.
2. Skerið niður beikon í litla bita og steikið þar til
það er stökkt. Skerið sellerí, lauk og pressið hvítlauk. Bætið sellerí og
lauknum út á pönnuna og steikið, bætið hvítlauknum saman við í lokin.
3. Bætið hakkinu út á pönnuna og kryddið til með salti og
pipar.
4. Þegar hakkið er tilbúið þá bætið þið 1 krukku af
pastasósu út á pönnuna ásamt nautasoði.
5. Setjið þrjú lárviðarlauf saman við en takið þau upp úr
réttinum áður en þið berið hann fram.
6. Saxið niður ferska steinselju og basilíku, sáldrið
yfir hakkið.
7. Sjóðið spaghettí samkvæmt leiðbeiningum á
pakkanum.
8. Berið fram með Parmesan osti og nóg af honum.
Einfalt hvítlauksbrauð
1 baguette brauð
ólífuolía
2 hvítlauksrif
1 dós sýrður rjómi
1 tsk dijon sinnep
salt og nýmalaður pipar
rifinn Mozzarella ostur
nýrifinn Parmesan ostur
steinselja
Aðferð:
Blandið saman sýrðum rjóma, pressuðum hvítlauk,
ólífuolíu, salti og pipar í skál. Skerið baguette brauðið eftir endilöngu og
leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið hvítlauksblöndunni yfir
brauðsneiðarnar og sáldrið rifnum osti yfir. Bakið við 200°C í nokkrar mínútur
eða þar til osturinn er gullinbrúnn. Saxið niður ferska steinselja og dreifið
yfir brauðið þegar það kemur út úr ofninum.

 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

 

Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *