Ítalskt Caprese salat

Þetta salat inniheldur kannski ekki mörg hráefni en engu að síður er þetta algjör veisla fyrir bragðlaukana. Það er nefnilega þannig að þegar góð hráefni eiga í hlut þá er algjör óþarfi að flækja málin. Einfalt, fljótleg og ómótstæðilega gott.
Caprese salat 
  • 1 askja kirsuberjatómatar
  • 2 kúlur Mozzarella
  • fersk basilíkublöð
  • 1 pakki hráskinka eða eins og 6 hráskinkusneiðar
  • 1 skammtur basilíkupestó
Basilíkupestó
  • 1 höfuð fersk basilíka
  • handfylli fersk steinselja
  • 150 g ristaðar furuhnetur
  • 50 g parmesanostur
  • 1 hvítlauksrif
  • safinn úr ½ sítrónu
  • 1 dl góð ólífuolía
  • salt og nýmalaður pipar
Aðferð:

 

  1. Skerið kirsuberjatómata í tvennt og leggið á
    pappírsklædda ofnplötu. Sáldrið smá ólífuolíu yfir og kryddið þá til með salti
    og pipar. Bakið við 180°C í 20 mínútur.
  2. Útbúið pestóið á meðan tómatarnir eru í ofninum.
    Setjið allt í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota, geymið í kæli þar til
    þið ætlið að bera réttinn fram.
  3.  Raðið hráskinku á fallegt fat eða disk, rífið
    niður Mozzarella og dreifið yfir, raðið tómötum og basilíkublöðum ofan á.
  4.  Að
    lokum setjið þið nokkrar matskeiðar af pestói yfir réttinn og berið einnig
    pestóið fram með réttinum í sér skál.
Ekki missa af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2 😉
 
 
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *