Mér hefur langað í svona kökudisk á mörgum hæðum – en hef bara aldrei gert meira í því heldur en langað… En um daginn sá ég svo krúttlegan topp – eða svona bara fallegan disk. Ég hef séð margar skemmtilegar hugmyndir um hvernig maður bara býr til sinn eigin kökudisk.
Og hvað gera bændur þegar að gúrme múffur stíga á stokk á góðum laugardegi? Jú, þeir fara að setja saman krúttlega diska.. bolla á milli og úr því rættist ágætis kökudiskur.
Ég fann til þá diska sem mér fannst krúttlegir og setti saman – svo er hægt að leika sér að vild. Mér finnst þetta allavega krúttlegt á borði.
Nú má sykrast að vild – því það er laugardagur!