Sjúklega gott og hollt laxasalat

Ég elska fisk og gæti borðað hann hvern einasta dag, hann er ekki bara ljúffengur heldur er hann einnig mjög hollur. Í kvöld langaði mig í eitthvað létt og gott og þá var laxasalat fyrir valinu. Það er tilvalið að nota fiskmeti í salöt og þetta salat á eftir að koma ykkur á óvart. Einfalt, fljótlegt og afar gott bæði fyrir líkama og sál.

 

Laxasalat með jógúrtdressingu

 

  • fyrir þrjá til fjóra

ólífuolía
smjör
1 stór sæt kartafla eða tvær meðalstórar
500 g lax, beinhreinsaður
salt og nýmalaður pipar
tímían
1 poki gott salat t.d. spínat eins og ég notaði í kvöld
ferskt dill
sítróna
ristaðar pekanhnetur
fetaostur

Aðferð:

  1. Afhýðið kartöfluna og skerið í litla bita, kryddið til með salti og pipar og leggið í eldfast mót. Hellið smá olíu yfir og bakið í ofni við 180°C í 30 – 35 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn.
  2. Skerið laxinn í jafn stóra bita
  3. Hitið olíu á pönnu, steikið laxinn í 2 – 3 mínútur á hvorri hlið. Kryddið til með salti, pipar og tímían. Þegar það er ca. 2 mínútur eftir af eldunartímanum er gott að bæta smjörklípu út á pönnuna.
  4. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar þá dreifið þið smátt söxuðu dilli yfir þær og kreistið smá sítrónusafa yfir í lokin.
  5. Blandið spínati, kartöflum, laxi, fetaosti og pekanhnetum vel saman í skál og berið fram með jógúrtsósunni góðu. (uppskrifin er hér að neðan)

Einföld og góð dillsósa

 

  •  Þessi sósa hentar með flestum fiskréttum en dill og fiskur passa mjög vel saman.

2 dl grískt jógúrt frá MS
1 hvítlauksrif
handfylli dill
salt og nýmalaður pipar
skvetta af hunangi
skvetta af sítrónusafa

Aðferð:

  1. Maukið allt saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél, geymið í kæli áður en þið berið fram með salatinu.

 

 

Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

 

Bon Appétit!
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

1 comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *