Piparkökuís með saltaðri karamellu

Það er fastur liður á mörgum
heimilinum fyrir jólin að útbúa jólaís. Á mínu heimili hefur aldrei verið
sérstök eftirréttahefð en tengdamóðir mín býr alltaf til svo góðan ís og í ár
langaði mig til þess að gera minn eigin sem ég ætla að bjóða upp á jólunum. Ég
notaði grunnuppskrift frá Ingibjörgu, tengdamóður minni en það er ein
eggjarauða á móti einni matskeið af sykri og þeyttur rjómi. Magnið fer svo eftir
því hvað þið ætlið að gera mikið af ís. Piparkökur eru algjört lostæti og eru
sérstaklega góðar í þennan ís, en þið getið auðvitað bætt t.d. súkkulaði eða
karamellu út í ísinn. Ég mæli þó með að þið prófið þessa uppskrift, silkimjúkur
ís og „crunch“ af piparkökunum. Ég bauð upp á salta karamellusósu með
ísnum, það er miklu einfaldara að útbúa eigin karamellusósu en ykkur grunar.

Piparkökuís

Fyrir 6 – 8
Jólaísinn
  • 10  eggjarauður (ég notaði eggjahvíturnar í marengs botna)
  • 10 msk sykur
  • 1 tsk vanilla extract eða vanillusykur
  • 400 ml rjómi, þeyttur
  • 250 g piparkökur (myljið kökurnar)
Aðferð:
1. Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn þar til blandan verður létt og ljós.
2. Bætið vanillu og piparkökumylsnu út í eggjablönduna og hrærið vel saman.
3. Þeytið rjóma og blandið honum varlega saman við með sleif.
4. Hellið blöndunni í form og frystið í lágmark sólarhring.
Berið ísinn gjarnan fram með saltaðri karamellusósu.
Söltuð karamellusósa
  • 150 g sykur
  • 4 msk smjör
  • 1 dl rjómi
  • sjávarsalt á hnífsoddi

Aðferð:
1. Bræðið sykur á pönnu við vægan hita, best að hafa alls ekki háan hita og fara hægt af stað.
2. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við í nokkrum skömmtum.
3. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er orðin þykk og fín.
4. Í lokin bætið þið saltinu saman við.
Leyfið sósunni að kólna alveg áður en þið hellið henni yfir skyrkökuna.

 

 

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *