Ég elska góð pæ og þá sérstaklega þetta pekanpæ sem ég ætla að deila með ykkur en uppskriftin er í kökubókinni minni Kökugleði Evu, það er að verða komið ár frá því að bókin kom út!! Tíminn gjörsamlega flýgur áfram og ég ætla í tilefni þess að hún á ársafmæli að vera dugleg að baka upp úr henni og deila uppskriftum með ykkur í leiðinni.
Ég fékk svo mikla löngun í þetta pæ þann sjöunda september.. og daginn eftir fór ég af stað og eignaðist hana Kristínu Rannveigu, ég vil þess vegna meina að pekanpæið hafi komið mér af stað 😉 Svo ef þið eruð á lokametrunum á meðgöngunni þá mæli ég sérstaklega með þessum bakstri.
Hér er uppskriftin – njótið vel.
Pekanpæ með súkkulaðibitum
Botn:
- 100 g smjör, við stofuhita
- 180 g hveiti
- 1 eggjarauða
- salt á hnífsoddi
- 1 tsk vanilla
- 2 – 3 msk ískalt vatn
Aðferð:
- Hnoðið öllu saman með höndum eða setjið í matvinnsluvél.
- Sláið deiginu upp í kúlu og geymið í kæli í 15 – 20 mínútur.
- Stráið smávegis af hveiti á borð og fletjið deigið út, setjið deigið í bökuform og útbúið fyllinguna.
Fylling:
- 50 g smjör, við stofuhita
- 180 g sykur
- 220 ljóst síróp
- 3 egg
- 1 tsk vanilla
- 130 g súkkulaði, ég notaði suðusúkkulaði
- 170 g pekanhnetur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Þeytið smjör og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós.
- Bætið sírópinu saman við og hrærið í eina til tvær mínútur.
- Bætið eggjum saman við, einu í einu og þeytið vel á milli.
- Saxið súkkulaði og hnetur frekar smátt og bætið við ásamt vanillu.
- Hellið fyllingunni ofan í bökuskelina og bakið við 180°C í 40 – 45 mínútur.
- Berið pæið fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.