PÁSKABOMBAN

PÁSKABOMBA

7,5 dl hveiti

5 dl sykur

2 tsk lyftiduft

2 tsk matarsódi

4 msk kakó

2 tsk vanilla

5 dl ab mjólk

2,5 dl ljós olía

3 egg

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn í 180°C.
  2. Blandið öllum hráefnum í skál og þeytið vel saman þar til deigið er silkimjúkt, það er gott ráð að skafa meðfram hliðum einu sinni til tvisvar.
  3. Skiptið deiginu í tvö smurð kökuform og bakið við 180°C í 35 – 40 mínútur.
  4. Kælið áður en þið setjið krem á milli og þekjið kökuna.

Hvítt súkkulaðikrem

300 g smjör

600 g flórsykur

2 tsk vanilla

1 msk rjómi

150 g brætt hvítt súkkulaði

Matarlitur eftir smekk

Aðferð:

  1. Þeytið saman smjör og flórsykur þar til blandan verður létt í sér.
  2. Bætið vanillu, rjóma og bræddu hvítu súkkulaði saman við og þeytið áfram í 3- 4 mínútur eða þar til kremið er orðið silkimjúkt.
  3. Litið gjarnan smjörkremið að vild og þá sér í lagi í páskalitunum, það er þá gert á þessu stigi og kremið sett í sprautupoka og kakan skreytt með allskyns fallegum litum.
  4. Sprautið kreminu á milli botnanna, skerið niður gott súkkulaði til dæmis mars og setjið nokkra bita á milli, endurtakið leikinn þar til þið eruð komin með tvö – þrjú lög.
  5. Þekjið kökuna með smjörkremi og skreytið gjarnan með fallegu páskaskrauti.

Þið getið séð hvernig ég skreytti kökuna á Instagram – Finnið mig undir evalaufeykjaran.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *