Ómótstæðilegur skyr eftirréttur með súkkulaðiköku og hindberjum

Sumarið hefur flogið áfram og það er óhætt að segja að það hafi verið dásamlegt, ég hef notið þess að vera í sumarfríi með Hadda og Ingibjörgu Rósu. Að vísu gátum við Haddi ekki tekið mikið frí saman, þurfum auðvitað að púsla þessu eins og annað fjölskyldufólk. Engu að síður höfum við náð að bralla margt skemmtilegt saman og ég mætti endurnærð til vinnu í morgun full tilhlökkunar varðandi haustið. Ég bakaði mjög mikið í fríinu og fyrr í sumar útbjó ég þennan ómótstæðilega eftirrétt sem þið ættuð að prófa. Skyrkökur og súkkulaðikökur eru gómsætar, þið getið þess vegna ímyndað ykkur þegar þessar tvær koma saman… brjálæðislega gott og einfalt.
Eftirréttur með súkkulaðiköku og berjaskyri.

 

100 smjör, brætt
2 Brúnegg
2,5 dl sykur
1,5 dl Kornax hveiti
2 tsk vanillusykur
3 msk gott kakó
½ tsk salt
Aðferð: Hitið ofninn í 175°C (blástur). Bræðið smjör í potti við
vægan hita. Þeytið saman sykur og egg í smá stund eða þar til blandan verður
létt og ljós. Blandið hinum hráefnunum saman við og hrærið í smá stund eða þar
til deigið verður silkimjúkt. Smyrjið bökunarform (mér finnst best að nota
smelluform en þá er mikið þægilegra að ná kökunni úr forminu).  Hellið
deiginu í formið og bakið við 175°C í 20 mínútur. Kælið kökuna og skerið í litla munnbita.
*Formið sem ég nota er 20cm að stærð.
*Mér finnst best að baka þennan botn við blástur en ef þið notið
yfir-og undirhita þá þurfið þið að hafa hærri hita t.d. 200°C.
Skyrkakan
  • 400 g hindberjaskyr t.d. frá KEA (það er líka hægt að nota
    blandað berjaskyr)
  • 200 ml rjómi, þeyttur
  • 3 msk flórsykur
  • 1 tsk vanilla extract eða sykur
  • 6 – 8 fersk hindber
Aðferð:
  1.  Hrærið skyrinu,
    flórsykrinum, vanillu og ferskum hindberjum saman í skál. Þegar það hefur
    blandast vel saman þá bætið þið þeytta rjómanum saman við.
  2.  Setjið
    eftirréttinn gjarnan saman í háu glasi eða í fallegri skál. Rífið niður hvítt
    súkkulaði í lokin og skreytið með ferskum hindberjum.

 

 

 

Algjört augnakonfekt og ljúffengur á bragðið.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *