OFNBÖKUÐ BLEIKJA Í TERYAKI SÓSU – EINFALT MEÐ EVU

 

Ofnbökuð bleikja í Teryaki sósu með æðislegu hrásalati

Matur í einum grænum – enn eitt dæmið um hvað er hægt að útbúa stórgóða máltíð á örfáum mínútum sem allir í fjölskyldunni elska.

• 4 bleikjuflök
• 1 msk ólífuolía + 1 tsk smjör
• Salt og pipar
• 6-8 msk Teriyaki sósa
• 1 hvítlauksrif
• 2 stilkar vorlaukur
• 6 msk hreinn fetaostur
• Ristuð sesamfræ

Hrásalat

• ½ höfuð Hvítkál
• ½ höfuð Rauðkál
• 4 gulrætur
• 4 radísur
• Handfylli kóríander
• Safi úr hálfri appelsínu

Aðferð:
1. Hitið ofninn í 180°C.
2. Leggið fiskinn á pappírsklædda ofnplötu.
3. Saxið hvítlauk og vorlauk mjög smátt og blandið saman við teryaki sósuna. Penslið fiskinn með sósunni og það má fara vel af sósunni á fiskinn.
4. Sáldrið ristuðum sesamfræjum yfir fiskinn og eldið í ofn við 180°C í 8 mínútur.
5. Þegar fiskurinn er tilbúinn er frábært að mylja vel af fetaosti yfir og bera hann síðan fram með gómsætu hrásalati.
Hrásalat:
1. Skerið hráefnin afar smátt eða notið matvinnsluvél til þess að rífa hráefnin mjög smátt.
2. Kreistið appelsínusafa og rífið niður kóríander yfir salatið í lokin.

 

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *