Kjúklingapasta á fimmtán mínútum – EINFALT MEÐ EVU

Kjúklingapasta með heimagerðu pestó

Matur á korteri! Það gerist mjög oft á mínu heimili að allt í einu er klukkan orðin mjög margt og ég ekki einu sinni búin að hugsa út í það hvað við eigum að borða, þess vegna er frábært að eiga uppskriftir sem eru þannig að það tekur enga og þá meina ég enga stund að útbúa. Það þarf nefnilega alls ekki að stökkva á eftir næsta skyndibita þar sem það getur verið fljótlegra að gera einfaldan rétt heima við.

*Fyrir fjóra

Hráefni:

  • 2 kjúklingabringur
  • 400 g penne heilhveitipasta
  • 1 msk ólífuolía
  • Salt og pipar, magn eftir smekk
  • Skvetta af sítrónusafi
  • 1 hvítlauksrif
  • 1/2 kúrbítur
  • 10 – 12 kirsuberjatómatar
  • 1 skammtur basilíkupestó, uppskrift hér að neðan
  • Parmesan ostur, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum í vel söltu vatni.
  2. Skerið kjúklinabringurnar í tvennt, kryddið með salti og pipar og steikið upp úr olíu í um það bil fimm mínútur á hvorri hlið. Kreistið hálfa sítrónu yfir og bætið einu hvítlauksrifi út á pönnuna í lokin.
  3. Skerið niður kúrbít og kirsuberjatómata í tvennt, bætið út á pönnuna og léttsteikið þar til grænmetið er mjúkt í gegn.
  4. Útbúið pestóið samkvæmt uppskrift og aðferð hér að neðan.
  5. Skerið kjúklinginn í litla bita, bætið pestóinu saman við og kryddið gjarnan með meira af salti og pipar. Berið strax fram með nýrifnum parmesan.

Gómsætt basilíkupestó 

• 1 búnt basilíka
• 100 g ristaðar furuhnetur
• 50 g ferskur parmesan ostur
• Safinn úr hálfri límónu
• Salt og pipar, magn eftir smekk
• 1-2 dl ólífuolía, magn eftir smekk

Aðferð:
1. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Þið stjórnið þykktinni með ólífuolíunni.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *