Mexíkó panna sem þú verður að prófa

Taco Tuesday heldur áfram að sjálfsögðu og ég var farin að þrá mexíkóskan mat. Þessi panna er nákvæmlega það sem mig vantaði í líf mitt! Kjúklingur, stökkar tortillakökur, nóg af osti, rjómaostur og var ég búin að segja nóg af osti? Þið þurfið hreinlega að prófa þennan rétt sem allra fyrst. Þið finnið skref fyrir skref myndir á Instagram – finnið mig undir evalaufeykjaran.

Mexíkósk panna

*Uppskriftin miðast við fjóra

  • 600 g kjúklingabringur, skornar í litla bita
  • 1 msk ólífuolía
  • 3 msk fajitas krydd
  • Salt og pipar
  • ½ laukur, skorinn í strimla
  • ½ rauð paprika, skorin í strimla
  • ½ græn paprika, skorin í strimla
  • 5 sveppir, smátt skornir
  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • 3 dl tómata passata
  • ½ kjúklingateningur
  • 5 msk rjómaostur
  • 1 dl maísbaunir
  • Tortillavefjur
  • Rifinn ostur, bæði pizzaostur og cheddar
  • Lárperur
  • Sýrður rjómi
  • Kóríander

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn í 180°C.
  2. Hitið olíu á pönnu, helst pönnu sem þolir að fara inn í ofn.
  3. Steikið kjúklinginn upp úr olíu, kryddið til með fajitas kryddi, salti og pipar. Bætið grænmetinu út á pönnuna og steikið áfram þar til mjúkt í gegn.
  4. Hellið tómata passasta saman við og myljið kjúklingateninginn yfir.
  5. Blandið öllu vel saman og bætið rjómaostinum saman við í lokin. Lækkið hitann og leyfið réttinum að malla við vægan hita í 10 mínútur.
  6. Hellið kjúklingablöndunni í skál, raðið tortillavefjum í sömu pönnu en ef þið eruð ekki með pönnu sem þolir að fara í ofn þá notið þið eldfast mót. Fyllið pönnukökurnar með kjúklingafyllingunni og  sáldrið rifnum osti yfir og magnið af ostinum fer eftir smekk. 
  7. Inn í ofn við 180°C í 10-15 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *