Lax í pekanhnetuhjúp

Lax er með því hollara sem við getum í okkur látið og er hann sannkölluð ofurfæða. Það er hægt að matreiða lax á marga vegu og er hann sérstaklega bragðgóður bakaður í ofni.
  • 1 laxaflak
  • gróft sjávarsalt
  • nýmalaður svartur pipar
  • hunangs djion sinnep
Hnetuhjúpur
100 g hnetur t.d. hesli og pekanhnetur
4 msk brauðrasp
steinselja
börkur af einni sítrónu
1 msk olía
2 hvítlauksrif, fínt rifnir
sjávarsalt
Aðferð
  • 1.   Hitið ofninn í 180°C.
  • 2.   Snyrtið laxaflakið og setjið í
    eldfast mót eða á pappírsklædda bökunarplötu.
  • 3.   Kryddið laxinn til með salti og
    pipar og penslið sinnepinu yfir hann. Dreifið hnetuhjúpnum yfir og þjappið
    honum vel ofan í sinnepið með hönfunum, þannig að hann haldist vel á. Bakið í
    15 mínútur. Takið þá laxinn út úr ofninum og látið hann standa í 5 mínútur áður
    en þið berið hann fram en þannig eldast hann aðeins lengur.
  • Berið fiskinn fram með fersku salati og jógúrtdressingu.
Jógúrtdressing
2 dl grískt jógúrt
1 hvítlauksgeiri
1 msk hunangs dijon sinnep
smátt söxuð steinselja
salt og pipar
Aðferð
Blandið öllu saman og bragðbætið með salti og pipar.
Ég vona að þið njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *