Kjúklingur Saltimbocca
Fjórar kjúklingabringur
- 8 hráskinkusneiðar
- 10 – 12 fersk salvíublöð
- Salt og nýmalaður pipar
- 1 – 2 msk. Ólífuolía
Aðferð:
Skerið kjúklingabringur í tvennt og kryddið með salti og pipar.
Leggið eitt salvíublað ofan á kjúklingabringuna og vefjið hráskinkunni utan um hvern bita. Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið
bringurnar í smá stund á hvorri hlið eða þar til þær eru brúnaðar á öllum hliðum.
Leggið bringurnar því næst í eldfast mót og inn í ofn við 180°C i 20 mínútur. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum útbúið þið sósuna og kartöflumús.
Kartöflumús með parmesan osti
- 500 g soðnar kartöflur
- 30 g smjör
- 1 dl mjólk
- Salt og nýmalaður pipar
- 1 dl rifinn parmesan ostur
Aðferð: Afhýðið kartöflurnar og bræðið smjörið. Setjið
kartöflurnar út í smjörið og takið pottinn af hitanum, stappið kartöflurnar vel
saman við smjörið og hellið volgri mjólk út í smáum skömmtum. Bætið ostinum við
og stappið öllu vel saman þar til réttri áferð er náð, það er smekksatriði hvað
þið notið mikla mjólk en þið finnið það um leið ef þið þurfið að bæta við mjólk.
Bragðbætið með salti og pipar.
Hvítvínssósa
- 2 msk. Smjör
- 6 – 7 fersk salvíublöð, smátt skorin
- 700 ml hvítvín
- 1 stk. Kjúklingakraftur
- Nýmalaður pipar
Aðferð: Bræðið smjörið á pönnu og steikið salvíublöðin.
Hellið hvítvíninu út á og bætið kjúklingakraftinum saman við. Kryddið til með
pipar. Leyfið sósunni að sjóða í smá stund, lækkið þá hitann og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur eða þar
til kjúklingurinn er tilbúinn.
Sjóðið gjarnan ferskann aspas og berið fram með réttinum.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.