Ég fékk svo hrikalega góðan kjúklinganúðlurétt hjá góðum vinum um daginn og fékk leyfi til þess að birta uppskriftina hér. Þetta er einn af þessum réttum sem þið hættið ekki að hugsa um og viljið helst sleika diskinn, hann er það góður. Ég held mikið upp á einfaldar, fljótlegar og bragðgóðar uppskriftir og það má með sanni segja að þetta sé ein af þeim. Bragmikill kjúklingur með fersku grænmeti, góðri sósu og stökkum wasabi hnetum… allt í einum bita! Ég er að segja ykkur það, þið verðið að prófa þennan rétt.
Njótið vel.
Kjúklinganúðlur með wasabi sósu
- 800 g
kjúklingakjöt (ég notað úrbeinuð læri) - 2 dl sojasósa
- 2 dl sweet chili
sósa - 200 g núðlur
- 1 rautt chili
- 1 agúrka
- 1 rauð paprika
- 2 stilkar
vorlaukur - kóríander
- límóna
- salt og pipar
- Wasabi hnetur
Aðferð:
- Blandið sojasósu og sweet chili sósunni saman.
- Leggið kjúklingakjötið í eldfast mót og hellið
sósunum yfir. Gott er að leyfa kjúklingnum að marinerast í 1 – 2 klst. Þess
þarf ekki en kjúklingurinn verður bragðbetri. Kryddið til með salti og pipar. - Eldið kjúklinginn
við 180°C í 25 – 30 mínútur. - Skerið agúrku, papriku og vorlauk mjög smátt.
- Sjóðið núðlurnar
samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. - Skerið
kjúklinginn í munnbita þegar hann er klár og blandið honum saman við núðlurnar
og grænmetið. Það ætti að vera sósa í fatinu sem er frábær út á núðlurnar. - Berið núðlurnar
fram með kóríander, límónu, bragðmikilli wasabi sósu og hnetum.
Bragðmikil sósa með wasabi og límónu
- 1 dós sýrður rjómi 10% t.d. frá MS
- 3 – 4 msk majónes
- Wasabi paste,
magn eftir smekk - Safinn úr hálfri
límónu - 1 tsk hunang
- Salt og pipar
Aðferð:
- Blandið öllu
saman í skál, best er að byrja að setja minna en meira af wasabi þar sem það er
afar sterkt. Gott er að geyma sósuna í kæli í 30 mínútur áður en hún er borin
fram. Það gildir með allar kaldar sósur.
Ég vona að þið eigið gott miðvikudagskvöld framundan.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.