Ég og Haddi eyddum helginni á Hvolsvelli, á leiðinni á Hvolsvöll þá stoppuðum við á nokkrum stöðum m.a. Þingvöllum, Laugarvatni og hjá Gullfoss. Mikið sem það var huggulegt, ég hefði þó viljað staldra lengur við á hverjum stað því veðrið var unaðslegt og náttúran ótrúleg.
Fórum í sund á Laugarvatni og fengum okkur auðvitað ís á eftir.
Gullfoss, ótrúlega ótrúlega fallegur.
Borðuðum kvöldverð á Hótel Rangá. Mæli innilega með því að þið skellið ykkur þangað.
Maturinn ó maturinn! Það sem var í miklu uppáhaldi hjá mér var Lundinn. Ég verð agalega svöng að skrifa hér um matinn, hann var lostæti og staðurinn mjög huggulegur, umhverfið er svo ótrúlega fallegt.
Fiskur dagsins. Jummí. Mér finnst þetta svo fallegur og litríkur réttur.
Hótel Rangá.
Ég vona að þið hafið átt góða helgi og að þið eigið góða viku.
xxx
Eva Laufey Kjaran