Hér getið þið séð klippu úr þættinum.
Ávaxtaplatti er alltaf góð hugmynd. Ég fer heldur og kaupi mér ljúffeng ber í staðinn fyrir nammibarinn um helgar. Ljúffeng ber eru nefnilega besta sælgætið. Ég veit ekki með ykkur en ég er alltaf svolítið sparsöm þegar kemur að berjum, þau eru nefnilega ekkert ódýr hér á landi svo ég ligg á mínum berjum eins og ormur á gulli. Passa hvert einasta ber og nýt þess að fá mér þau í morgunmat, sem millimál eða nota þau í desert.
Sælkerasalat
150 g klettasalat
2 kúlur Mozzarella ostur
300 – 400 g hráskinka
1 askja kirsuberjatómatar
8 – 10 jarðaber
Ristaðar furuhnetur, magn eftir smekk
Balsamik gljái
Aðferð: Leggið klettasalatið á fallegan disk, skerið Mozzarella ostinn í jafnstóra bita og dreifið ofan á salatið. Setjið hráskinkuna yfir salatið og skerið jarðaber og tómata smátt og dreifið yfir hráskinkuna. Ristið furuhnetur og dreifið yfir í lokin. Gott er að bera salatið fram með balsamik gljáa.
Eggjamúffur
8 egg
1 dl mjólk
1 msk. ólífuolía
salt og nýmalaður pipar
1 rauð papríka
1 græn papríka
1 dl vorlaukur, smátt skorinn
Handfylli spínat
2 – 3 msk. Rifinn ostur t.d. parmesan
Aðferð: Hitið ofninn í 180 gráður við undir- og yfirhita. Eggin eru þeytt létt saman í skál og því næst bætið þið mjólkinni saman við og kryddið til með salti og pipar. Skerið grænmetið fremur smátt, hitið olíu á pönnu og steikið í smá stund. Blandið grænmetinu saman við eggjablönduna og hrærið. Í lokin bætið þið ostinum saman við. Skiptið blöndunni jafnt niður í bollakökuform og bakið í rúmlega 20 – 25 mínútur eða þar til eggjamassinn er orðinn stífur.
Einföldustu pönnukökur í heimi
4 egg
2 bananar
½ tsk. kanill
¼ tsk. Lyftiduft
Aðferð: Pískið eggin vel saman og leggið til hliðar. Stappið banana og blandið saman við eggin ásamt kanil og lyftidufti. Það er einnig og eiginlega betra að blanda þessu öllu saman í blandara í smá stund. Deigið verður fínna ef sú aðferð er notuð. Hitið t.d. kókosolíu eða smjör á pönnu og steikið pönnukökurnar í örfáar mínútur á hvorri hlið. Njótið með ljúffengu sírópi og ferskum ávöxtum.