Heimalagað tagliatelle með risarækjum og pastasósu. Hinn fullkomni pastaréttur!
Pastadeig
- 400 g hveiti
- 3 egg
- 4 eggjarauður
- 1 ½ msk ólífuolía
- 1 tsk salt
Aðferð:
- Setjið hveiti á borðflöt og gerið holu í miðjuna á hveitinu, setjið egg, eggjarauður, salt og ólífuolíu í holuna og blandið öllum hráefnum saman með höndum.
- Hnoðið deigið vel í nokkrar mínútur og sláið deiginu upp í kúlu, setjið plastfilmu yfir kúluna og geymið deigið í kæli í 30 – 40 mínútur.
- Skiptið deiginu í þrjá hluta og fletjið hvern hluta út, í pastavél eða með kökukefli.
- Skerið pastadeigið í þunnar lengjur eða notið pastavélina til þess að móta tagliatelle.
- Sjóðið í vel söltu vatni í þrjár mínútur.
Risarækjur í tómata-og basilíkusósu
- 1 msk ólífuolía
- 12 – 14 risarækjur
- 1 hvítlauksrif
- ¼ rautt chili
- 1 msk ólífuolía
- 2 laukar
- 2 hvítlauksrif
- 350 g saxaðir tómatar í dós eða passata
- 1 kjúklingateningur
- 1 msk smátt söxuð basilíka
- salt og pipar
- parmesan
Aðferð:
- Hitið olíu á pönnu, saxið niður eitt hvítlauksrif og ¼ chilialdin, steikið í smá stund á pönnu og bætið síðan risarækjum út á pönnuna og steikið þar til þær eru orðnar bleikar. Takið þær af pönnunni og byrjið á sósunni. (óþarfi að skola pönnuna á milli)
- Hitið olíu á pönnu, saxið niður lauk og hvítlauk og steikið þar til laukurinn er orðinn glær í gegn.
- Bætið tómötum, kjúklingakrafti og smátt saxaðri basilíku út á pönnuna og kryddið til með salti og pipar.
- Leyfið sósunni að malla í nokkar mínútur og bætið risarækjunum út í lokin.
- Rétt áður en þið berið réttinn fram er gott að setja soðið pasta út í sósuna og rífa niður nóg af ferskum parmesan yfir réttinn.
Berið strax fram og njótið.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.