Ein köka á dag kemur skapinu í lag

Jumm to the Í.

Ákvað í morgun að skella í nokkrar hollar smákökur – því mér vantar alltaf eitthvað nart yfir daginn! Og viti menn.. rambaði ég ekki á þessar líka dýrindis kökur. Hvílíkt lostæti! Ég er of spennt en það er í lagi því kökurnar eru svo góðar – ok,viðurkenni að það myndi líklega ekkert skemma að skella smá sjokkó með en ég prufa það um helgina.
Uppskrift:
2x Bananar / stappaðir
1x bolli af döðlum (ég lét veeeel í bollann) Bleytti þær í smá stund í heitu vatni áður en ég skar svo í smáa bita og blandaði saman við bananana…
1 tsk. vanilludropar
2 msk af kókos olíu
Þetta blandað saman
Svo ….
2x bollar af höfrum
1/2 af kókosflögum
1.msk af hörfræjum
Dass af kanil og pínkupons salt
Þessu öllu blandað saman og látið standa í ca. 10 mín.
Svo gerir maður litlar eða stórar kúlur – hvaðeina sem manni langar til þess að gera og skellir þessu í ofn á 175° – í 15-20 mín.

Endilega deildu með vinum :)