Döðlukaka með karamellusósu
- 5 msk sykur
- 120 g smjör, við stofuhita
- 2 egg
- 100 g hveiti
- 100 g ristaðar kasjúhnetur
- 210 g döðlur
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk kanill
- 1/2 salt
- 1/2 vanillu extract, eða dropar
- 1 1/2 tsk lyftiduft
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið hringlaga kökuform.
- Setjið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir, þegar vatnið nær suðu takið pottinn af hitanum og látið hann standa í
3 – 4 mínútur. - Blandið matarsóda við döðlumaukið og blandið því vel saman. Leyfið blöndunni að standa í svolitla stund eða þar til blandan kólnar, hún má ekki far heit saman við smjörið (trúið mér – ég hef brennt mig á þeim mistökum nokkrum sinnum)
- Þeytið smjör og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós, bætið einu og einu eggi saman við og þeytið í mínútu á milli.
- Setjið þurrefninsaman við ásamt vanillu. Þeytið í smá stund og bætið síðan döðlumaukinu saman við í þremur skömmtum ásamt ristuðum kasjúhnetum.
- Hellið deiginu í smurt form og bakið við 180°C í 35 – 40 mínútur.
Heimsins besta karamellusósa
- 120 g smjör
- 1 1/2 dl rjómi
- 120 g púðursykur
- Hitið öll hráefnin í potti þar til karamellan fer að sjóða, hrærið reglulega í pottinum eða þar til þið hafið náð ágætri þykkt á karamellunni.
Berið kökuna fram með rjóma eða ís.. eða bæði 🙂
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.