Í gærkvöldi var sérstakt sítrónuþema í Matargleðinni og ég útbjó þessar sjúklega einföldu brúskettur sem eru tilvaldar í sumar, sem forréttur eða bara sem léttur kvöldverður. Gott brauð, rjómaostur og reyktur lax fara einstaklega vel saman. Það tekur líka enga stund að skella í þessar einföldu og bragðgóðu brúskettur, sumsé þið eigið eftir að elska þær.
Ljúffengt
laxabrauð með sítrónurjómaosti
Einföld matreiðsla
Áætlaður tími frá byrjun til enda: 20 mínútur
Fyrir 3-4
- 1 gott brauð t.d. súrdeigsbrauð
- reyktur lax, í sneiðum
- 200 g rjómaostur, hreinn
- salt og pipar
- safi af hálfri sítrónu
- börkur af hálfri sítrónu
- 1 msk smátt saxaður graslaukur
- Klettasalat
- Ólífuolía
- Hreinn fetaostur
- Sítrónubátar
Aðferð:
- Skerið gróft brauð í sneiðar og leggið í eldfast mót, sáldrið ólífuolíu
yfir og bakið í ofni við 200°c í 4-5 mínútur. - Hrærið saman rjómaosti, salti, pipar, sítrónusafa, sítrónuberki og graslauk
í skál. - Smyrjið vel af rjómaostinum á hverja brauðsneið og leggið klettasalatið og
laxinn yfir. - Myljið fetaost yfir í lokin ásamt því að saxa niður graslauk og skreytið
brauðið með honum. - Berið brauðið fram með sítrónubátum.
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.