img_9599

Í dag er föstudagur sem þýðir að það er eflaust pizza á matseðlinum á flestum heimilum í kvöld geri ég ráð fyrir, að minnsta kosti höfum við haft það fyrir venju að baka saman (eða stundum pantað) pizzu á föstudagskvöldum. Ég elska góðar og matarmiklar pizzur og ég bakaði þessa einn föstudaginn fyrir ekki svo löngu síðan og svei mér þá ef þetta er ekki ein af bragðbetri pizzum sem ég hef smakkað, þökk sé hægeldaða svínakjötinu eða pulled pork. Ég fæ vatn í munninn á því að tala um þessa pizzu og ég verð að hvetja ykkur til þess að prófa þessa – ég er fullviss um að þið verðið jafn ánægð með hana og ég.

Njótið vel og góða helgi kæru lesendur!

img_9567

Pulled pork pizza með Doritos

  • 600 g úrbeinaður svínahnakki
  • ólífuolía
  • salt og pipar
  • 1 tsk paprikukrydd
  • ½ tsk cuminkrydd
  • 1 rauðlaukur
  • 330 ml bjór t.d. Einstök (eða annar bjór sem þið viljið nota)
  • 2 dl soðið vatn

Aðferð:

Léttsteikið svínhnakkana upp úr olíu í 1 – 2 mínútur á hvorri hlið, kryddið til með salti, pipar, paprikukryddi og cuminkryddi. Setjið kjötið í pott með loki sem þolir það að fara inn í ofn. Hitið ofninn í 150°C. Skerið rauðlauk í fjóra bita og setjið út í pottinn, hellið bjórnum og vatninu saman við og setjið lokið á pottinn. Eldið kjötið í 4 – 5  klst eða alveg upp í 7 klst! Það fer eftir því hvað þið hafið langan tíma. En auðvitað er hægt að kaupa tilbúið pulled pork í flestum matvöruverslunum en ég mæli samt með því að þið prófið að gera það sjálf, miklu betra heimagert – svo mikið er víst.

Þegar kjötið er tilbúið þá setjið þið það á bretti og tætið það í sundur með til dæmis gaffal. Ég setti eins og 2 dl af bbq sósu saman við og þá bara þá bbq sósu sem ykkur þykir best.

Álegg:

  • Hægeldað svínakjöt
  • Rauðlaukur
  • Kirsuberjatómatar
  • Ferskur kóríander
  • Fetaostur
  • Doritos með ostabragði

Fletjið út pizzabotninn og setjið vel af svínakjötinu á botninn, bakið við 200-220 °C í 10 – 15 mínútur eða þart til pizzabotninn er orðinn gullinbrúnn.

Skerið rauðlauk, tómata og kóríander fremur smátt og setjið yfir pizzuna þegar hún er tilbúin. Myljið einnig fetaost og sáldrið yfir ásamt leynivopninu já leynivopninu en það er appelsínugult Doritos, það er svo gott með safaríka svínakjötinu og fá smá kröns í hverjum bita.

img_9576

Pizzabotn

  •  240 ml volgt vatn (mikilvægt að vatnið sé volgt)
  • 2 ½ tsk þurrger
  • 1 msk hunang
  • 2 tsk salt
  • 2 msk olía
  • 400 – 450 g hveiti (gæti þurft meira en minna)

Aðferð:

Blandið volgu vatni, geri og hunangi saman í skál. Leggið viskastykki yfir skálina og leyfið gerinu að leysast upp í rólegheitum, eða í 7-10 mínútur. Um leið og það byrjar að freyða í skálinni þá er gerblandan tilbúin. Hellið gerblöndunni í hrærivélaskál og bætið öllum hráefnum saman við, það er góð regla að bæta hveitinu smám saman við. Látið hnoðast í vélinni í 6 – 10 mínútur eða þar til deigið er orðið í laginu eins og kúla, einnig á það ekki að vera klístrað. Setjið viskastykki yfir hrærivélaskálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund eða þar til þar hefur tvöfaldast að stærð.
img_9584img_9586img_9592img_9596img_9599img_9601img_9604img_9607

Góða helgi <3

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

unknown-1

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *