Tryllingslega gott humarsalat með mangósósu

Þetta humarsalat er sannkallað lúxussalat þegar við viljum gera sérlega vel við okkur. Ég gjörsamlega elska þetta salat og gæti borðað það í öll mál… en þið vitið, maður borðar víst ekki humar í öll mál 🙂 Ég hvet ykkur til þess að prófa það og þá sér í lagi ef þið eigið von á góðum gestum, þá er bókað mál að þið sláið í gegn.

Humarsalat með mangósósu og ristuðum furuhnetum

Einföld matreiðsla 
Áætlaður tími frá byrjun til enda: 40 mínútur 
Fyrir 3-4 
  • Gott salat t.d. klettasalat og lambhagasalat
  • 1 askja kirsuberjatómatar
  • 1 askja jarðarber ca. 10 stk
  • ½ melóna (má vera hvaða tegund sem er)
  • 1 mangó
  • ½ rauðlaukur
  • ½ rauð paprika
  • 600 g humar, skelflettur
  • smjör
  • ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif
  • ½ chili
  • 1 tsk fersk smátt söxuð steinselja
  • 1 poki furuhnetur

 

Aðferð:
  1. Skerið öll hráefnin smátt niður og blandið saman í skál eða leggið á fat.
  2. Skolið humarinn vel og þerrið, steikið upp úr olíu og smjöri ásamt
    pressuðum hvítlauk, smátt skornu chili og ferskri steinselju.
  3. Steikið humarinn
    í 3 – 4 mínútur. Setjið humarinn þá strax yfir salatið.
  4. Sáldrið ristuðum furuhnetum yfir í lokin ásamt nokkrum skeiðum af sósunni.

 

Hvítlaukssósa með mangó
  • 1 dós sýrður rjómi
  • ½ mangó
  • 2 msk majónes
  • 1 hvítlauksrif
  • ¼ rautt chili
  • salt og pipar
  • 1 tsk hunang

 

Aðferð:

 

  1. Setjið öll hráefni í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Gott er að
    kæla sósuna í hálftíma áður en þið berið hana fram.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *