Toblerone marengsterta.

Ég er afskaplega mikið fyrir
góðar marengstertur og þessi er sú allra besta. Ég fékk þessa uppskrift hjá
Eddu systur minni. Hún hlýtur að vilja deila henni með ykkur, hún fær engu um
það ráðið blessunin. Þessi terta er svakalega einföld og góð, ef ykkur finnst
marengs, rjómi og súkkulaði gott þá ættu þið að prófa þessa uppskrift. Það er
tilvalið að bera þessa tertu fram sem desert á jólunum eða einfaldlega með
kaffinu um helgina. Marengsterta er alltaf góð hugmynd. Ég mæli einnig með því
að þið frystið tertuna. Ég er einmitt með eina í frystinum sem ég ætla að bjóða
mínu fjölskyldunni upp á um jólin, þetta getur nefnilega líka verið ljúffeng
ísterta.

Toblerone marengsterta

Fyrir 8 – 10
Botnar:
  • 4 eggjahvítur
  • 4 dl púðursykur

 

Aðferð:
Stillið ofn á 110°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu eða bökunarpappír í botninn
á tveimur 22 cm lausbotna formum og smyrjið hliðarnar með smjöri. Þeytið
eggjahvíturnar og bætið sykri saman við í smáum skömmtum. Stífþeytið þar til
blandan hreyfist ekki til í skálinni sé henni hvolft. Skiptið marengsblöndunni
á bökunarpappírinn eða í formin og bakið í 1 ½ klst við 110°C.
 
Toblerone kremið góða.
  • 500ml rjómi
  • 2 eggjarauður
  • 4 tsk flórsykur
  • 1 tsk vanillusykur eða dropar
  • 150 g Toblerone, smátt saxað
Aðferð:  Þeytið
eggjarauður og flórsykur saman þar til eggjablandan verður ljós og létt. Þeytið
rjóma og bætið eggjablöndunni varlega saman við rjómann með sleif ásamt
vanillu. Í lokin fer súkkulaðið dásamlega út í rjómablönduna. Setjið kremið á
milli botnanna og ofan á. Skreytið kökuna með ferskum berjum og nokkrum
súkkulaðibitum.

 

 

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *