Tikka Masala kjúklingur

Í síðasta þætti af Matargleði Evu fékk ég til mín góða gesti í indverska veislu með öllu tilheyrandi. Indverskur matur er brjálæðislega góður og fullkominn matur til að deila með góðum vinum. Aðalréttur kvöldsins var Tikka Masala kjúklingur sem við erum svo hrifnar af. Berið kjúklingaréttinn fram með raita sósu, hrísgrjónum og góðu naan brauði.

Tikka masala kjúklingur

  • 3hvítlauksrif
  • 1 mskrifið ferskt engifer
  • 3 msksítrónusafi
  • 1 dlhrein jógúrt
  • 3 msksítrónusafi
  • 1 tsksalti
  • ½ rauttchilialdin
  • 1 tskkóríanderfræ
  • Handfyllisaxað kóríander
  • 3 tsk garam masala
  • 700 gkjúklingakjöt, skorið í litla bita
Aðferð:
Blandið öllum hráefnum saman og skerið kjúklingakjötið í litla bita. Setjið
allt í plastpoka og inn í kæli í 2 – 3 klukkstundir, best yfir nótt. Eftir þann
tíma er kjúklingurinn steiktur á pönnu í 2 – 3 mínútur og síðan fært yfir í
pottinn með sósunni og látið malla í 15 – 20 mínútur.
Sósan:
  • 2 – 3msk ólífuolía
  • 2hvítlauksrif
  • 1 mskrifið engifer
  • ½ rauttchilialdin
  • 1 tsktúrmerik
  • 1 tsk cumin
  • 1 tskmúskat
  • 2 msktómatpúrra
  • 200 ghakkaðir tómatar
  • 3 msksýrður rjómi
  • 3 mskhrein jógúrt
  • 1 drjómi
  • handfylliferskur kóríander
Aðferð:
Hitið olíu á pönnu og steikið hvítlauk, engifer og chili. Bætið kryddunum út á
pönnuna og hrærið. Því næst fara hakkaðir tómatar, tómatpúrra, sýrður rjómi,
rjómi og hrein jógúrt saman við. Leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur og
steikið kjúklinginn á meðan. Setjið kjúklinginn út í pottinn og leyfið sósunni
að malla í 20 mínútur. Smakkið ykkur til með salti og pipar.
Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í Hagkaup.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *