Tandoori kjúklingur með raita sósu og naan brauði

Tandoori kjúklingur

  • 700-800 g kjúklingakjöt, helst læri
  • 2 hvítlauksrif
  • 4 cm engifer, ferskt
  • 200 g ab mjólk
  • 1 tsk paprika
  • 1 tsk garam masala
  • 1 tsk salt
  • ½ tsk pipar
  • 1 tsk kóríander
  • 1 tsk túrmerik

Aðferð:

  1. Rífið niður engifer og hvítlauk í skál, hellið ólífuolíunni saman við og hrærið vel.
  2. Bætið kryddunum saman við og hrærið. Því næst fer ab mjólkin eða hreint jógúrt út í og öllu blandað vel saman.
  3. Skerið rákir í kjúklingakjötið áður en þið setjið kjötið út í marineringuna.
  4. Setjið plastfilmu yfir skálina og geymið í ísskáp í nokkrar klukkustundir, best yfir nótt.
  5. Hitið grillpönnu eða útigrillið, takið kjúklingakjötið úr marineringunni og grillið á mjög heitri pönnu eða grilli í 5-7 mínútur á hvorri hlið eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
  6. Saxið niður ferskan kóríander og sáldrið yfir kjúklinginn áður en hann er borinn fram.

Naan brauð

  • 150 ml volgt vatn
  • 200 g hveiti
  • 2 tsk þurrger
  • 1 tsk hunang
  • 1 tsk salt
  • 3 msk ab mjólk
  • 1 msk ólífuolía
  • 1msk brætt smjör
  • 1 msk ólífuolía
  • 1 hvítlauksrif
  • ½ tsk salt
  • 1 tsk smátt söxuð steinselja

Aðferð:

  1. Blandið vatni, geri og hunangi saman í skál. Leggið viskastykki standa yfir skálina og um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerið tilbúið.
  2. Bætið því næst hveitinu, saltinu, ab mjólkinni og ólífuolíunni saman við og hrærið vel saman. Stráið smá hveiti á borð og hnoðið þar til deigið verður samfellt og fínt, leyfið deiginu að hefast í klukkustund.
  3. Skerið deigið í litla bita og mótið kökur, þær eiga að vera fremur þunnar.
  4. Steikið á heitri pönnu á hvorri hlið í 1-2 mínútur.
  5. Blandið saman í skál, smjöri, olíu, salti, steinselju og hvítlauk og penslið á naan brauðin þegar þau eru nýsteikt. Það gefur þeim dásamlegan hvítlaukskeim! Má auðvitað sleppa því ef þið eruð ekki hrifin af hvítlauk.

Raita sósa

  • 250 g ab mjólk
  • ½ agúrka
  • Salt og pipar
  • 2 msk smátt saxður kóríander

Aðferð:

Saxið hráefnin afar smátt og blandið öllu vel saman í skál, geymið helst í kæli í smá stund áður en þið berið sósuna fram.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *