Sushi – Humarrúlla með chili majónesi

Guðdómlegt sushi með djúpsteiktum humar og bragðmikilli chilisósu

 

Hráefnin sem þið þurfið í rúlluna:

  • Sushi hrísgrjón
  • 600 g skelflettur humar
  • Tempura deig
  • Ferskur aspas, soðinn í söltu vatni í 3 mínútur
  • agúrka, skorin í þunnar og langar sneiðar
  • rauð paprika, skorin þunnar og langar sneiðar
  • lárpera
  • ferskur kóríander
  • chili majónes
  • pikklaður engifer
  • wasabi mauk
  • sojasósa
  • Nori blöð

Sushi hrísgrjón

350 g sushi hrísgrjón
7 ½ dl vatn
salt
hrísgrjónaedik
1 tsk sykur

Aðferð

Skolið hrísgrjónin mjög vel, mér finnst best að skola þau í góðu sigti. Það tekur svolitla stund eða um 5 – 7 mínútur. Leggið hrísgrjónin í bleyti í köldu vatni í um það bil tvær klukkustundir, skiptið um vatn 2 – 3 sinnum.

Setjið hrísgrjónin út í kalt vatn í þykkbotna pott og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann þannig að rétt malli og sjóðið í 20 mínútur við lægsta suðuhita.

Takið pottinn af hitanum og hafið lok á. Látið standa í 15mínútur áður en hrísgrjónin eru notuð til sushi gerðar.

Setjið hrísgrjónin í pappírsklædda ofnplötu og hellið ediksblöndu yfir (blandið saman hrísgrjónaediki og sykri).

Blandið vel saman og leyfið grjónunum að kólna alveg áður en þið notið þau.

Humar tempura

130 g hveiti

½ tsk lyftiduft

200 ml sódavatn

Salt og pipar, ca. ½ tsk samtals af hvoru
djúpsteikingarolía

Aðferð:

Blandið öllum hráefnum saman í skál og hitið olíu í potti (ca. 500 ml af olíu)  Þerrið humarinn afar vel svo það fari ekki umfram vökvi í deigið, dýfið humrinum varlega ofan í deigið og svo beint í olíuna. Djúpsteikið humarinn í nokkrar mínútur eða þar til hann er orðinn gullinbrúnn. Setjið humarinn beint á eldhúspappír þegar hann er tilbúinn.

 

Chili majónes

200  ml japanskt majónes

2 – 3 msk siracha sósa

Salt og pipar

Skvetta af límónusafa

Aðferð:

Setjið öll hráefni í skál og hrærið vel saman þar til sósan er silkimjúk.

Samsetning:

Dreifið hrísgrjónum yfir nori blað og snúið strax við, setjið agúrku, aspas, humar, papriku og smávegis af kóríander ofan á nori blaðið og rúllið upp, varlega. Þegar þið hafið náð að mynda góða rúllu þá skerið þið lárperu afar þunnt sem þið skreytið rúlluna með ásamt því að dreifa vel af chili majónesinu yfir. Njótið strax!

 

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *