Súkkulaðibollakökur fyrir súkkulaði sælkera

Ég bakaði þessar kökur fyrr í sumar eða nánar tiltekið þann fjórða júlí. Ég man það mjög vel vegna þess að daginn eftir var ég komin upp á sjúkrahús og þann 6.júlí kom dóttir mín í heiminn. Kannski voru það þessar kökur sem komu mér af stað?. Þær eru allavega ofsalega góðar og kremið er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég mæli með að þið prófið þessar kökur, ég vona að þið njótið vel! 
Súkkulaðibollakökur fyrir sælkera
  • 115 g súkkulaði, helst 50 – 70 % 
  • 90 g smjör, við stofuhita
  • 175 g sykur
  • 2 egg, aðskilinn 
  • 185 g Kornax hveiti 
  • 3/4 tsk lyftiduft
  • 3/4 tsk matarsódi
  • salt á hnífsoddi 
  • 2 1/2 dl mjólk
  • 1 tsk vanilla extract eða vanillusykur
  • 60 g dökkt súkkulaði, hakkað
Aðferð: Hitið ofninn í 200°C. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði, hrærið vel í á meðan og passið að súkkulaðið brenni ekki. Leggið súkkulaðiblönduna til hliðar og kælið. Þeytið saman sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós, blandið eggjarauðum saman við og þeytið áfram. Næsta skref er að hella súkkulaði saman við og halda áfram að þeyta. Sigtið saman hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt. Blandið hveitiblöndunni saman við súkkulaðiblönduna og hrærið vel saman. Hellið mjólkinni varlega saman við og vanillunni. Stífþeytið eggjahvítur og blandið þeim varlega saman við deigið með sleif. Saxið dökkt súkkulaði og blandið við deigið í lokin. Skiptið deiginu niður í bollakökuform og bakið við 200°C í 20 – 22 mínútur. Kælið kökurnar áður en þið setjið á þær krem. 

 Kremið sem ég sprautaði á kökurnar er hvítt súkkulaðikrem. Þegar ég baka bollakökur þá nota ég yfirleitt þetta krem, það er ofsalega bragðgott og það er mjög gott að skreyta kökur með þessu kremi. Ef ykkur finnst kremið ekki nógu stíft þá bætið þið meiri flórsykri saman við. 
  • 250 g smjör, við stofuhita
  • 400 – 450 g flórsykur
  • 150 g hvítt súkkulaði
  • 1 – 2 tsk vanilla extract eða sykur
  • 1 – 2 msk rjómi eða mjólk 
Aðferð:  Það er mikilvægt að gefa sér tíma fyrir þetta krem. Þeytið saman smjör og flórsykur í 5 – 6 mínútur, stoppið tvisvar sinnum og skafið meðfram hliðum. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og blandið því saman við kremið. Þeytið kremið í 3 – 4 mínútur. Næsta skref er að bæta vanillu og rjóma/mjólk. Ég vil að kremið sé mjög mjúkt og þess vegna finnst mér frábært að nota smá rjóma en það er auðvitað hægt að nota mjólk líka. Þeytið kremið í 4 mínútur til viðbótar eða þar til þið eruð ánægð með kremið. Ljúffengt krem sem að mínu mati er fullkomið á bollakökur. 

 Hvítu súkkulaðihnapparnir frá Nóa Síríus hafa reynst mér best. Ég er búin að prófa mörg önnur hvít súkkulaði í þetta krem en mér finnst það best með þessu súkkulaði. 

Hér er ég búin að sprauta kökurnar. Kremið er silkimjúkt eins og þið sjáið. Ég skreytti þær með súkkulaðiperlum frá Nóa og dökku súkkulaði sem ég reif niður með rifjárni. 

Ég mæli með að þið prófið þessa uppskrift kæru vinir. 
xxx
Eva Laufey K. Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *