Steikarloka með chili bernaise sósu

Steikarloka með chili bernaise sósu

  • Baguette brauð
  • Nautakjöt, má vera hvaða bita sem er (eldaður)
  • Sveppir
  • Laukur
  • Hvítlaukrif
  • Smjör
  • Klettasalat
  • Bernaise sósa – uppskrift að neðan

 

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið sveppi og lauk, steikið upp úr smjöri á pönnu þar til laukurinn er orðinn mjúkur í gegn. Geymið til hliðar á meðan þið undirbúið brauðið.
  3. Skerið baguette brauð í tvennt og hitið í ofni í smá stund þar til brauðið er gulliðbrúnt. Smyrjið bernaise sósu á botninn á baguette brauðinu, leggið salatblöð yfir bernaise sósuna, skerið niður nautakjöt og leggið ofan á ásamt steiktum sveppum og lauk. Í lokin setjið þið væna skeið eða skeiðar af bernaise sósunni yfir og leggið lokið á baguette brauðinu yfir.

Berið strax fram og njótið.

Chili Bernaise sósa

  • 5 stk eggjarauður
  • 250 g smjör
  • 1 msk bernaise essence
  • 2 tsk fáfnisgras, smátt saxað (2-3 tsk.)
  • ½ rautt chilialdin
  • salt og nýmalaður pipar

Aðferð:

Þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði og bætið smjörinu smám saman við, þetta er svolítil handavinna en er vel þess virði. Ef skálin er of heit takið þið hana af vatnsbaðinu og kælið en haldið alltaf áfram að hræra. Það er mjög mikilvægt að skálin sé ekki of heit því annars eldast eggjarauðurnar. Saxið niður ferskt fáfnisgras og rautt chilialdin, setjið út í sósuna og bragðbætið einnig með bernaise essence, salti og pipar.

 

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *