Spaghettí pizza með mozzarella og basilíku

Spaghettí pizza með mozzarella og basilíku

Botn:

  • 300 g spaghettí , soðið
  • 2 egg
  • 1 dl parmesan ostur
  • salt og pipar
  • ólífuolía

Aðferð:

Setjið spaghettí, egg og nýrifinn parmesan ost í skál og blandið vel saman. Kryddið til með salti og pipar. Dreifið spaghettíinu á pappírsklædda ofnplötu og bakið í ofni við 200°C í 5 mínútur. Þegar sá tími er liðinn er pizzan tekin út úr ofninum og kæld rétt á meðan sósan og annað meðlæti er undirbúið og svo fer pizzan aftur inn í ofn í smá stund.

Sósa:

Tómat-og basilíkusósa

  • 1 msk ólífuolía
  • 1 hvítlauksrif
  • ½ laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 350 g saxaðir tómatar í dós eða passata
  • 1 kjúklingateningur
  • 1 msk smátt söxuð basilíka
  • salt og pipar

Aðferð:

Hitið olíu á pönnu, saxið niður hvítlauk og lauk og steikið upp úr olíunni í smá stund þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Bætið söxuðum tómötum út á pönnuna  ásamt hálfum kjúklingatening, saxið niður basilíku og bætið henni saman við. Hrærið vel í sósunni og kryddið til með salti og pipar. Leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur. Smyrjið spaghettí botninn með tómat-og basilíkusósunni.

Skerið niður mozzarella ost og dreifið yfir sósuna, kryddið gjarnan pizzuna með salti og pipar. Bakið í ofni við 200°C í 15 mínútur eða þar til botninn er orðinn gullinbrúnn.

Þegar pizzan er klár er gott að skera niður ferskt kál til dæmis klettasalat og dreifa yfir pizzuna ásamt því að rífa niður parmesan ost og dreifa yfir.

Berið strax fram.

 

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *