Sænskar kjötbollur með öllu tilheyrandi

Sænskar kjötbollur með öllu tilheyrandi

Í síðasta þætti af Matargleði var sænsk matargerð í aðalhlutverki og ég eldaði meðal annars þessar ljúffengu kjötbollur með kartöflum, brúnni sósu, góðri sultu og súrum agúrkum… virkilega gott.
Sænskar
kjötbollur
Smjöreða ólífuolía
1 stórlaukur
2 msk smáttsöxuð steinselja
500 g svínahakk
500 g nautahakk
3 msk sýrður rjómi
1 egg
3 – 4 msk brauðrasp
salt ognýmalaður pipar
Aðferð:
  1. Hitiðsmjör eða ólífuolíu á pönnu, steikið laukinn í smá stund eða þar til hann fer
    að mýkjast. Saxið niður steinselju og bætið út á pönnuna.
  2. Blandiðöllum hráefnum saman í skál og mótið litlar bollur úr hakkblöndunni.
  3. Steikiðbollurnar á pönnu, snúið reglulega og leggið í eldfast mót. Klárið að elda
    bollurnar í ofni við 180°C í 10 – 15 mínútur.
  4. Beriðbollurnar fram með kartöflum, brúnni sósu, góðri sultu og súrum agúrkum.

 

 Brauðrasp
4brauðsneiðar
ólífuolía
salt ogpipar
Aðferð:
  1. Hitið
    ofninn í 200°C. Leggið brauðsneiðarnar á pappírsklædda ofnplötu og sáldrið
    ólífuolíu yfir brauðið, kryddið til með salti og pipar.
  2. Bakið í ofni við 200 C
    í nokkrar mínútur eða þar til brauðið er orðið stökkt og gullinbrúnt.
  3. Setjið
    brauðið í matvinnsluvél og maukið þar til það verður að fínu brauðraspi.

 

Brún og gómsæt sósa
300 ml rjómi eða matreiðslurjómi
1 dl kjúklingasoð
3 msk sýrður rjómi
1 tsk góð berjasulta
salt og pipar
1 msk smátt söxuð steinselja
sósuþykkjari, magn eftir smekk
Aðferð:
  1. Blandið
    öllum hráefnum saman í pott og náið upp suðu. Leyfið sósunni að malla í nokkrar
    mínútur.
  2. Kryddið
    til með salti og pipar. Gott er að saxa niður ferska steinselju og sáldra yfir
    sósuna rétt í lokin.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2 .
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt háefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *