Snittubrauð og útskriftin hans Hadda

Á laugardaginn útskrifaðist Haddi minn sem viðskiptafræðingur frá HR. Að sjálfsögðu vorum við með boð fyrir fjölskyldu og vini hér heima fyrir og fögnuðum þessum áfanga. Ég ákvað að bjóða upp á smárétti en það er einstaklega þægilegt og það er hægt að vinna sér inn tíma og undirbúa réttina svolítið áður. Ég var búin að baka allar kökur fyrr í vikunni og setti í frysti, tók þær svo út með smá fyrirvara og þá átti ég bara efir að skreyta þær. Snitturnar tóku sennilega lengsta tímann en það er ákaflega gaman að skreyta snittur og það er endalaust hægt að leika sér með hráefni.
Dagurinn var alveg frábær, veðrið var gott og fólkið okkar svo skemmtilegt. Þetta gat ekki klikkað. Ég tók að sjálfsögðu myndir og hér koma nokkrar sem og uppskriftir að góðu og einföldu snittubrauði og tillögur að áleggi.
Vanillu– og súkkulaðibollakökur slá alltaf í gegn.

 

Fjórar tegundir af snittum sem gleðja bæði auga og bragðlauka.
Ég keypti bæði tilbúin snittubrauð og bakaði nokkur, ég hefði átt að byrja fyrr að baka brauðin og eiga í frysti en stundum er tíminn ekki að vinna með manni og þá er gott að geta skotist út í bakarí!
Snittubrauð
  • 500
    g brauðhveiti frá Kornax (gæti þurft meira en minna)
  • 320 ml volgt vatn
  • 1
    msk hunang
  • 15 g
    ger
  • 1
    tsk salt
  • 2  msk ólífuolía
1.
Blandið þurrgeri, volgu vatni og hunangi saman. Setjið
viskastykki yfir skálina og leyfið gerinu að vakna í rólegheitum, það tekur 6 – 8 mínútur. Þegar byrjar að freyða í blöndunni er hún tilbúin.
2.
Blandið gerblöndunni, hveiti, salti og olíu saman og
hnoðið í nokkrar mínútur eða þar til deigið verður mjúkt. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefast
í klukkustund.
3.    Búið til tvær lengjur úr deiginu og  skerið létt í
brauðin eftir endilöngu. Látið hefast á ný í 20 – 30 mínútur.
4.
Hitið ofninn í 220 – 230°C. Það er afar mikilvægt að
ofninn sé mjög heitur þegar brauðið fer inn í hann.

 

5.
Bakið í um það bil 10 mínútur eða þar til brauðið er
orðið stökkt og gullinbrúnt.

 

Frönsk súkkulaðikaka og litlar pavlovur.

 

 

Caprese snittur
snittubrauð
grænt pestó
kirsuberjatómatar
mozzarella ostur
basilíka
salt og nýmalaður pipar
Aðferð:
1. Skerið snittubrauð í sneiðar.
2. Smyrjið brauðsneiðarnar með grænu pestó.
3. Skerið kirsuberjatómata og litlar mozzarellakúlur í sneiðar.
4. Raðið tómötum og ostinum ofan á hverja sneið, kryddið til með salti og pipar. Leggið eitt basilíkulauf yfir hverja sneið.

 

Ítölsk dásemd
snittubrauð
hvítlauks alioli
Ítölsk krydduð pylsa eða hráskinka
klettasalat
hægeldaðir kirsuberjatómatar
salt og nýmalaður pipar
parmesan ostur
Aðferð:
1. Skerið snittubrauð í sneiðar.
2. Smyrjið brauðsneiðarnar með hvítlauks alioli.
4. Raðið kryddpylsu eða hráskinku ofan á hverja sneið.
5. Skerið klettasalatið niður og setjið yfir pylsuna.
6. Skerið kirsuberjatómata í tvennt, leggið í eldfast mót og dreifið olíu yfir. Kryddið til með salti og pipar og bakið í ofni við 150°C í 2 – 3 klst. Setjið tómat ofan á hverja sneið.
7. Kryddið til með salti og pipar. Rífið niður parmesan ost og sáldrið yfir í lokin.

 

Herra Salómon
snittubrauð
majónes
dill
dijon sinnep
sítróna
salt og nýmalaður pipar
reyktur lax
grænt epli
graslaukur
Aðferð:
1. Skerið snittubrauð í sneiðar.
2. Setjið 5 msk af majónesi, handfylli af fersku dilli, 1 msk af dijon sinnepi, safann úr hálfri sítrónu, salt og pipar í matvinnsluvél og maukið þar til sósan verður silkimjúk. Smakkið ykkur að sjálfsögðu til!
3. Smyrjið hverja sneið með dillsósunni og leggið laxinn yfir.
4. Skerið niður grænt epli í þunnar sneiðar og setjið yfir laxinn.
5. Skerið niður graslauk og dreifið yfir snitturnar í lokin.

 

Sælkerasnitta
snittubrauð
hvítlauks alioli
camenbert ostur
beikon
rauð paprika
tyttuberjasulta
radísuspírur
Aðferð:
1. Skerið snittubrauð í sneiðar.
2. Smyrjið hverja sneið með hvítlauks ailoli.
3. Skerið niður Camenbert og leggið yfir hverja sneið.
4. Steikið beikon þar til það verður mjög stökkt og skerið það í litla bita. Setjið beikonbita yfir ostinn.
5. Setjið eina tsk af tyttuberjasultu yfir.
6. Skerið rauða papriku mjög þunnt og leggið yfir.
7. Í lokin setjið þið smá radísuspírur yfir, þær eru ofsalega bragðgóðar.

 

 

 

Loksins er hægt að fá fallegar bóndarósir út í blómabúð, þessar eru einstaklega fallegar.

 

 

 

Ein fjölskyldumynd, Ingibjörg Rósa er ekkert ofsalega hrifin af þessu myndastússi og grettir sig bara 😉
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *