Grillaðir hamborgarar með beikon- og piparosti.

Það er ótrúlega lítið mál að útbúa heimatilbúna hamborgara og þeir smakkast miklu betur en þeir sem eru keyptir út í búð. Þegar sólin skín er tilvalið að dusta rykið af grillinu og grilla góðan mat, helst í góðra vina hópi. Ég grillaði þennan ómótstæðilega hamborgara um daginn og svei mér þá ef hann er ekki bara kominn í uppáhald, svo góður er hann. Ég mæli með að þið prófið núna um helgina.

Grillaðir hamborgarar með beikon- og piparosti.

600 g
nautahakk
olía
rauðlaukur
1 dl
smátt skorið stökkt beikon
2 msk
dijon sinnep
2 msk
söxuð steinselja
1 egg
brauðrasp
2 dl
rifinn piparostur
salt og
pipar

 

hvítmygluostur
Aðferð:

 

  1.  Hitið olíu á pönnu, skerið rauðlaukinn í sneiðar og
    steikið upp úr olíunni í nokkrar mínútur eða þar til hann er mjúkur í gegn.
  2. Blandið öllum hráefnum saman í skál fyrir utan
    hvítmygluostinn. Brauðrasp eða hveiti bindur deigið betur saman en notið eins
    mikið og þið ykkur finnst þið þurfa af því. Best er að nota hendurnar til
    verksins!
  3. Mótið fjóra til fimm hamborgara, ég keypti mér ágæta
    hamborgarapressu frá Weber í Hagkaup um daginn og mér finnst hún alveg frábær.
    Kostar tæplega 2000 kr. Kjarakaup!
  4. Grillið hamborgarana í þrjár mínútur á lokuðu
    grilli, snúið þeim við og bætið hvítmygluosti að eigin vali ofan á og grillið
    áfram í 4 – 6 mínútur.
  5. Það er gott að setja hamborgarabrauðin á grillið rétt
    í lokin.
  6. Berið borgarann fram með majónesi, dijon sinnepi,
    káli, tómat og gjarnan enn meiri rauðlauk. Ég var einnig með sætar
    kartöflufranskar, en ég skar niður nokkrar sætar kartöflur í lengjur. Velti
    þeim upp úr olíu og kryddaði til með salti, pipar og paprikukryddi. Bakaði við
    180°C í 35 – 40 mínútur.

    Það er alltaf líf og fjör í upptökum. Hér er búið að klemma mig í bak og fyrir á meðan ég stilli matnum upp fyrir myndatöku. Allt eins og það á að vera.Ég vona að þið eigið góða helgi framundan.

    xxx

    Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

    Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

     

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *