Sesar Salat með ljúffengri hvítlaukssóu

eva-4

Sesar salat
Þetta salat er eitt vinsælasta salat í heimi og er það ekki að ástæðulausu. Kjúklingur, stökkt beikon, gott kál og annað ljúfmeti saman í eitt. Sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana! Við byrjum á því að útbúa sósuna sem fylgir salatinu.
Hvítlaukssósa
1 dós sýrður rjómi
1 tsk dijon sinnep
2 – 3 tsk majónes
1 tsk hvítvínsedik
1 tsk sítrónusafi
salt og pipar
2 hvítlauksrif
50 – 60 g nýrifinn parmesan ostur
Aðferð:
Maukið allt saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Geymið
í kæli áður en þið berið fram með salatinu.
Salatið.
3 kjúklingabringur, skornar í teninga
Ólífuolía
Salt og pipar
Kjúklingakrydd
100 g beikon
Kál, magn eftir smekk (helst Romain salat)
1 agúrka
10 kirsuberjatómatar
Aðferð:
Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið upp úr olíu,
kryddið til með salti, pipar og kjúklingakryddi.  Steikið beikonið á annarri pönnu eða steikið
í ofni. Saxið kálið smátt og dreifið á fat. Skerið agúrkuna, tómatana og
beikonið í litla bita og dreifið yfir kálið. Því næst bætið þið
kjúklingabitunum og brauðteningunum yfir salatið. Í lokin rífið þið duglega af
parmesan osti yfir allt salatið og ekki spara ostinn!
Hvítlauksbrauðteningar
Hvítt brauð
1 dl Ólífuolía
Salt og pipar
2 Hvítlauksrif
Aðferð:

 

Blandið saman olífuolíu, pressuðum hvítlauk, salti og
pipar í skál. Skerið brauðið í teninga og veltið þeim upp úr hvítlauksolíunni.
Leggið brauðteningana á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 180°C í nokkrar
mínútur eða þar til þeir eru gullinbrúnir og stökkir.
Njótið vel.
Fylgist endilega með Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:50.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verlslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *