Pulled Pork í ljúffengri bbq sósu

 

Pulled Pork í bbq
sósu

  • 700-800 g úrbeinaður svínahnakki
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1 tsk cumin krydd
  • 1 tsk bezt á allt krydd
  • Salt og pipar
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk ólífuolía

 

Aðferð:
  1. Kryddið kjötið með þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan.
  2. Brúnið
    kjötið á öllum hliðum upp úr ólífuolíu í víðum potti sem má fara inn í ofn.
  3. Skerið niður einn lauk og bætið honum út í pottinn ásamt tveimur
    hvítlaukrifjum.
  4. Leyfið kjötinu að malla í pottinum við vægan hita á meðan þið
    útbúið bbq sósuna.

 

BBQ sósa
  • 1 msk ólífuolía
  • 1 laukur
  • 1 ½ dl tómatasósa
  • 1-2 msk balsamikgljái
  • 1 msk hunang
  • Salt og pipar
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1 tsk cumin krydd

 

Aðferð:
  1. Saxið niður laukinn og steikið upp úr olíunni í eina til tvær
    mínútur. Bætið því næst hinum hráefnunum saman við og leyfið sósunni að malla í
    smá stund.
  2. Hellið síðan sósunni yfir svínakjötið og setjið lokið á pottinn og
    inn í ofn við 110°C í 6-8 klst.
  3. Berið svínakjötið fram í góðu brauði, með
    salati og pikkluðum rauðlauk.

 

Pikklaður rauðlaukur
  • 1 rauðlaukur
  • 1 dl hvítvínsedik
  • 1 msk sykur

 

Aðferð:
  1. Skerið rauðlauk í jafn stórar sneiðar, setjið í krukku eða skál og hellið
    hvítvínsediki og sykri saman við.
  2. Blandið vel saman og geymið í kæli í lágmark
    klukkstund.
Án ef minn uppáhalds skyndibiti!
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *