Mangókarrý Kjúklingasamloka

Í gær var ég með heilan kjúkling í matinn og átti afgang af honum í dag. Mér finnst fátt leiðinlegra en að henda mat, þannig ég er að venja mig á það að nýta afgangana betur. 
Þannig ég ákvað að búa til eitthvað gott og fljótlegt.

Mangókarrý kjúklingasamloka

Ég skar endana af fjórum brauðsneiðum, nuddaði dálítið af ólífuólíu á
brauðið og lét smá salt og pipar á það. Hitaði smá olíu á pönnu við
vægan hita og steikti brauðið þar til það var orðið fremur stökkt. Tók
það af pönnunni og lét til hliðar.
Skar niður kjúkling, kjötið sem ég
skar niður samsvaraði 1 kjúklingabringu myndi ég halda . Ég notaði sömu
pönnu og ég steikti brauðið á, bætti smá olíu á pönnuna og steikti
kjúklinginn smávegis. Bætti 1 1/2 msk af mango chutney og 1/2 tsk af
karrý á kjúklinginn. Blandaði þessu vel saman á pönnunni og þá er
kjúklingurinn klár.

 Lét brauðið í eldfast mót, setti kjúkling á brauðið,
reif niður ost og lét á kjúklinginn. Inn í ofn í 3 – 4 mín við 180°C, eða
þar til osturinn hefur alveg bráðnað.

Notið það grænmeti sem ykkur þykir
best. Ég notaði ruccola, tómata og rauðlauk.
Grænmetisfranskar fylgdu auðvitað með, paprika og agúrka. 
Ég mæli með að þið setjið dass af kotasælu á samlokuna, það gerir hana einstaklega góða.

Nú sit ég hér pakksödd en agalega sæl með góða máltíð. 
Ég vona að þið njótið vel.
 xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

4 comments

Leave a Reply to Eva Laufey Kjaran - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *