Límónukókos Cupcakes

Ég geri ansi oft vanillu cupcakes en ákvað að breyta til í dag og lagaði mína tegund af límónukókos cupcakes.

LímónuKókos cupcakes. ca. 22 kökur

200 g smjör
3 dl sykur
4 egg
5 dl hveiti
1 ½ tsk. lyftiduft
4 dl Kókosmjólk
Rifinn börkur af einni límónu
Safi úr einni límónu
2 msk. Vanilla Extract ( eða vanilludropar)
Hitið ofninn í 200°C. Hrærið smjör og sykur saman í hrærivél og bætið síðan eggjum saman við, einu í einu (Helst að hræra hvert egg í tvær mínútur áður en þið bætið næsta eggi við). Blandið hveiti og lyftidufti saman í annarri skál og sigtið blönduna þrisvar til fimm sinnum í gegnum sigti. Bætið hveitinu og kókosmjólk saman við smjörblönduna í smáskömmtum. Bætið vanilla extract,límónusafa og börknum af einni límónu við í lokin. 
Skiptið deiginu í pappaform og bakið í 20 mín. 
Ég notaði hvítt súkkulaðikrem á kökurnar, uppskriftina finnið þið hér
Ég sáldraði kókosmjöli yfir kremið og skar sömuleiðis niður límónu í litla bita og skreytti kökurnar með fallegum límónu bitum.
Ég vona að þið njótið vel.

 Byrjunin á huggulegum bakstri

 Gómsætt deig

Þessi sumarlegu form fást m.a. í Hagkaup. En ég lét bollakökurnar þó í hvít form að bakstrinum loknum, einfaldlega vegna þess að mér fannst það fallegra myndefni. Hvítu formin voru of lítil til þess að baka í svo þetta var bara með útlitið að gera fyrir myndirnar því auðvitað smakkast kökurnar jafn vel í hvaða formum sem er. 

Mjög einföld uppskrift. Ég vona að þið njótið vel og mæli ég auðvitað hiklaust með því að þið prufið þessa uppskrift, einstaklega sumarlegar kökur sem koma skapinu í lag.
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

8 comments

  • Vanillukökurnar eru algjört æði, þessar verða sko prófaðar, helst bara um helgina 🙂
    Góða helgi
    kveðja
    Kristín S

  • Ég er með þessar í ofninum núna 🙂 En mig langaði mikið til að forvitnast um hvaða kúnst liggur á bak við það að fá þær nokkuð flatar að ofan? Ég sé að mínar eru að verða bústnar og ansi hnöttóttar og ég sé ekki alveg fyrir mér hvernig er best að láta kremið tolla á þeim 😛

    • Kökurnar hjá mér eru mun stærri þegar að þær koma út úr ofninum, svo kæli ég þær í lágmark 30 mínútur og þá síga þær niður. En ef þær gera það ekki þá er líka sniðugt að skera efsta hlutinn af, bara lítið svo þær verði flatar.

      Gleðilegan bakstursdag!

  • í uppskriftinni eru 4 egg, en á myndinni eru bara 2 egg. Gæti verið að það eigi bara að vera 2 egg?
    kv. Erla

Leave a Reply to Halldóra - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *