Það er ekki seinna vænna en að draga grillið fram í sumarblíðunni.. *hóst*. Við fengum þó nokkra sumardaga og ég var sannfærð um góða veðrið væri komið til að vera en ég gleymdi því í smá stund að við búum vissulega á Íslandi, haha. Eeeen, ég dreif mig að grilla þegar veðrið var gott og það var svo ótrúlega ánægjulegt að ég verð að deila því með ykkur. Ég keypti besta lambakjöt sem ég hef smakkað í langan tíma í Hagkaup, nánar tiltekið í Kringlunni. Lambarifjur í einskonar trufflumarineringu sem ég get ekki hætt að hugsa um og ég mun svo sannarlega kaupa það kjöt aftur um leið og sólin lætur sjá sig á ný.
Ég bauð fjölskyldunni í grill og var með lambarifjur og nautalund, það eru flestir mun hrifnari af nauti í minni fjölskyldu en lambið var vinsælla í þessu boði og kláraðist fljótt og örugglega. Ég verð þess vegna að mæla með þessum lambarifjum.. hvað er ég búin að segja lamb oft í þessum stutta texta?!?.
Ójæja, hér koma myndir og tillögur að grillmat!
- Nautalund
- Salt og pipar
- Góð ólífuolía
Aðferð:
- Snyrtið lundina og skerið í jafn stóra bita, berjið aðeins í hvern bita með buffhamri.
- Kryddið til með salti og pipar.
- Sáldrið ólífuolíu yfir og grillið eða steikið á pönnu og klárið að elda í ofni.
- Við grillum lundina í 3 – 4 mínútur á hvorri hlið.
- Ef ég elda hana inni, þá steiki ég hana á öllum hliðum á pönnu og klára að elda í ofni við 220°C í 12 mínútur.
Við grilluðum lambarifjurnar í nokkrar mínútur á hvorri hlið, ég man ekki nákvæmlega hversu lengi en bara þegar þær eru orðnar frekar dökkar eins og þið sjáið á mynd hér að neðan að þá eru þær tilbúnar.
Gummi bróðir minn kom með þetta gómsæta kartöflusalat – ég þarf að fá uppskrift og deila henni með ykkur. Þvílíkt gott!
Aspas með hráskinku og parmesan
- Ferskur aspas
- Hráskinka
- Parmesan
- Góð ólífuolía
Aðferð:
- Sjóðið aspas í söltu vatni í þrjár mínútur.
- Þerrið vel og setjið hann í eldfast mót, raðið hráskinku yfir og sáldrið smá ólífuolíu yfir í lokin. Eldið í ofni þar til hráskinkan er orðin stökk. (við 180°C)
- Rífið niður parmesan og nóg af honum áður en þið berið réttinn fram.
Piparostasósa
- 1 piparostur
- 500 ml rjómi
- 1 nautateningur
Aðferð:
- Rífið niður piparost (með því er fljótlegra að bræða ostinn)
- Setjið ost, rjóma og tening í pott. Hrærið vel saman og passið að hafa hitann ekki of háan.
- Sósan er tilbúin þegar osturinn er bráðnaður og sósan silkimjúk.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessar uppskriftir fást í verslunum Hagkaups.